Stjórnmál

Ráðu­neytið af­hendir öll gögn og segist aldrei hafa heitið trúnaði

Magnús Jochum Pálsson

2025-03-23 18:33

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Forsætisráðuneytið sendi fjölmiðlum í dag tölvupóstasamskipti ráðuneytisins og Ólafar Björnsdóttur og tímalínu um viðbrögð sín. Þar kemur fram Ólöfu hafi aldrei verið heitið trúnaði, öfugt við það sem Ólöf hefur sjálf sagt. Aðstoðarmaður Kristrúnar sendi aðstoðarmanni Ásthildar skjáskot af fundarbeiðni Ólafar sem innihélt símanúmer og heimilisfang hennar.

Forsætisráðuneytið sendi fjölmiðlum rétt fyrir 17 öll gögn úr málaskrá ráðuneytisins vegna erindis sem barst 9. mars þar sem óskað var eftir fundi með forsætisráðherra.

Þar sjá yfirlit yfir tölvupósta sem bárust ráðuneytinu. Búið er afmá nafn sendanda en þegar liggur fyrir um er ræða Ólöfu Björnsdóttur, fyrrverandi tengdamóður Eiríks Ásmundssonar, barnsföður Ásthildar Lóu Þórsdóttur.

Ráðuneytið hefur jafnframt tekið saman í skjali tímalínu málsins af sinni hálfu til veita sem gleggsta mynd af meðferð erindisins innan ráðuneytisins.

Þá kemur fram málið enn opið í málaskrá ráðuneytisins og beiðanda verði sent lokasvar áður en málinu verður lokað. Hér fyrir neðan sjá framvindu málsins, tölvupósta Ólafar og svör ritara forsætisráðherra.

Vinsamlegast útvegið mér fund með Kristrúnu Frostadóttur

Fyrsti pósturinn barst þann 9. mars til ráðuneytisins sem fyrirspurn send gegnum vef Stjórnarráðsins. Hann var svohljóðandi: Góðan daginn, vinsamlegast útvegið mér fund með Kristrúnu Frostadóttur sem allra fyrst, fund sem mun taka um 5 mínútur.

Í tímalínuskjali ráðuneytisins segir í fjölmiðlum hefði komið fram Ólöf hefði hringt í ráðuneytið tveimur dögum síðar, þann 11. mars, og fengið þau svör trúnaði haldið um erindi sem til þess berast.

Eftir könnun innan ráðuneytisins hafi komið fram enginn starfsmaður ráðuneytisins hafi móttekið umrætt símtal. Ráðuneytið hafi þá óskað eftir upplýsingum frá Umbruþjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, sem annast símsvörun fyrir Stjórnarráðið, um það hvort umrætt símtal hafi borist þangað.

Umbra greindi frá því símtal hefði borist þangað frá sendanda klukkan 12:06 þann 11. mars. Símtalið hafi varað í fjórar mínútur og þar hafi verið óskað eftir samtali við forsætisráðherra. Efnisatriði málsins hafi ekki verið rædd og trúnaði ekki heitið.

Símtalið var ekki áframsent á starfsmenn forsætisráðuneytis en samkvæmt venju var innhringjanda leiðbeint um hafa samband við ráðuneytið með tölvupósti á netfangið til bera upp erindið og óska eftir viðtali.

Ráðuneytið áréttar stjórnvöldum er ekki heimilt heita trúnaði um upplýsingar sem þeim berast, enda gildi meginregla upplýsingar og gögn sem stjórnvöldum berast skuli vera aðgengileg nema þær takmarkanir á upplýsingarétti sem mælt er fyrir um í upplýsingalögum eða sérlögum eigi við.

Beðið um fund með Kristrúnu sem Ásthildur mætti sitja

Þremur mínútum eftir samtalinu lauk, klukkan 12:13, sendi Ólöf póst beint á forsætisráðuneytið. Þar greindi Ólöf frá því málið varðaði Ásthildi Lóu Þórsdóttur.

Hann hljóðaði svo: Góðan daginn, ég bið um stuttan fund með Kristrúnu Frostadóttur en það varðar Ásthildi Lóu Þórsdóttur, það er í góðu lagi hún sitji líka fundinn, ef Kristrún vill það. Liggur á.

Í tímalínuskjali ráðuneytisins kemur fram erindið hafi verið tekið fyrir sama dag, 11. mars, á reglulegum fundi forsætisráðherra klukkan 13:00 með aðstoðarmönnum og ritara ráðherra þar sem fjallað er um ýmis innsend erindi og beiðnir sem ráðherra berast.

Á þeim fundi var ákveðið kanna hvort mennta- og barnamálaráðherra þekkti til sendanda eða mögulegs fundarefnis áður en afstaða yrði tekin til fundarbeiðninnar, segir í skjali ráðuneytisins

Sendandi erindisins borinn undir Ásthildi Lóu

Strax í kjölfarið hafi aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra, sent aðstoðarmanni Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra, textaskilaboð. Þar hafi aðstoðarmaðurinn spurst fyrir um hvort ráðherra þekkti til sendanda eða mögulegs fundarefnis.

Með skilaboðunum hafi fylgt skjáskot af fundarbeiðninni 11. mars þar sem sendandi gaf upp nafn, símanúmer og heimilisfang. Síðar sama dag hafi aðstoðarmenn Kristrúnar og aðstoðarmaður Ásthildar hist á Alþingi þar sem ráðherrar svöruðu óundirbúnum fyrirspurnum klukkan 13:30.

Aðstoðarmaður Ásthildar hafi þar greint aðstoðarmanni Kristrúnar frá því munnlega Ásthildur þekkti ekki til sendanda og vissi ekki um hvað mögulegt fundarefni snerist. Ásthildur hafi komið á eftir aðstoðarmanni sínum og staðfest það við aðstoðarmann Kristrúnar.

Frekari samskipti milli forsætisráðuneytis og menntabarnamálaráðuneytis áttu sér ekki stað um fundarbeiðnina eða málið að öðru leyti fyrr en 20. mars, segir í skjalinu.

Degi síðar, þann 12. mars klukkan 14:12, svaraði Martha Ricart, ritari forsætisráðherra, erindinu og bað sendanda útskýra erindið áður en það yrði tekið til skoðunar í ráðuneytinu.

Ólöf greinir frá erindinu

Rétt eftir miðnætti þann 13. mars svaraði Ólöf pósti ritarans og greindi frá erindinu í ítarlega máli. Búið er afmá stærstan part töluvupóstsins vegna upplýsinga sem falla undir 9. grein upplýsingalaga nr. 140/2012.

Ólöf byrjar póstinn á því segja á vefnum komi fram Ásthildur Lóa Þórsdóttir eigi tvo drengi með manni sínum en það ekki rétt.

Ég steig ekki fyrr fram því ég áttaði mig ekki á þetta væri sem var skrifar Ólöf en búið er afmá framhaldið. Fylli maður í eyðurnar er Ólöf væntanlega tala um Ásthildur sem eignaðist barn með Eiríki Ásmundssyni fyrir 36 árum þegar hún var 22 ára og hann sextán ára.

Restina af textanum er búið afmá fyrir utan eina setningu um miðbik póstsins: Ég vil hún stigi til hliðar og þá mun ég ekki ræða þetta frekar

Morguninn eftir klukkan 11:19 þann 13. mars sendi Ólöf annan póst á ritara forsætisráðherra sem búið er afmá algjörlega.

Ráðuneytið hafnar erindinu

Ritari forsætirsráðherra svarar pósti Ólafar klukkan 10:36 degi síðar, þann 14. mars og þakkar henni fyrir skýra erindið. Þá greinir hún frá því ekki hægt bjóða fund eða símtal við forsætisráðherra vegna málsins.

Tuttugu mínútum síðar, klukkan 10:56, sendir Ólöf annan póst á ritarann. Ólöf virðist þá ekki hafa séð síðasta póst ritarans þar sem erindinu er hafnað og spyr aftur hvenær erindi hennar verði tekið fyrir.

Um 40 mínútum síðar, klukkan 11:39, svarar ritarinn: Ég sendi svar fyrr í morgun um ekki væri unnt bjóða samtal við forsætisráðherra vegna málsins.

Spurt hvort Kristrún samþykk því hafa Ásthildi í ráðuneytið

Eftir þetta sendir Ólöf þrjá pósta á ritarann yfir fjörutíu mínútna tímabil. fyrsti birtist klukkan 11:50, ellefu mínútum eftir svar ritarans berst. Hann er svohljóðandi: Ég var sjá það og spyr því, af hverju ekki? Samþykkir forsætisráðherra Ásthildi í þetta ráðuneyti með þessa sögu?

Þrátt fyrir Ólöf segist hafa séð svarið virðist svo ekki vera því tveimur mínútum síðar, klukkan 11:52, sendir hún annan póst á ritarann þar sem hún segist ekki finna svarið: Fyrr í morgun finn það ekki einu sinni í ruslpóstinum.

Rúmum einum og hálfum tíma síðar, klukkan 12:31, sendir Ólöf annan póst þar sem hún leiðréttir síðasta póst sinn. Hann hljóðar svo: Leiðrétting Þú sendir fyrr í morgun en ég bíð eftir svari.

Vil gjarnan frá svar

Fjórði pósturinn í röð frá Ólöfu til ritarans berst þremur dögum síðar, 17. mars, klukkan 14:52.

Þar hún biður enn um svör frá ráðuneytinu við spurningu sinni um það hvort forsætisráðherra samþykki Ásthildi í barnamálaráðuneytið með sína sögu.

Vil gjarnan svar svo ég geti brugðist við, mínu mati er þetta algjörlega óásættanlegt, skrifar Ólöf í póstinum.

Ritarinn svarar ekki þeirri spurningu Ólafar heldur áframsendir póst hennar um klukkutíma síðar, 14:52, á aðstoðarmenn forsætisráðherra: Ólaf Kjaran og Kristínu Ólafsdóttur.

Dagur afsagnarinnar

Í tímalínuskjali ráðuneytisins segir í símtali þann 20. mars klukkan 10:55 hafi fréttamaður RÚV óskað eftir upplýsingum frá aðstoðarmanni forsætisráðherra um það hvort erindi sendanda hefði borist ráðuneytinu. Símtalið við fréttamanninn hafi varað í eina mínútu.

Þremur klukkustundum síðar sama dag, klukkan 13:52, hafi aðstoðarmaður Ásthildar sent aðstoðarmanni Kristrúnar skilaboð þar sem óskað var eftir fundi með forsætisráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra um málið. Það hafi verið gert vegna fyrirspurna RÚV til mennta- og barnamálaráðherra.

Forsætisráðherra hafi verið upplýstur um fundarbeiðni barnamálaráðherra skömmu síðar, klukkan 14:02. Þá hafi verið efnt til fundar forsætisráðherra, utanríkisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra sem hafi lokið á sjötta tímanum.

Sjá einnig: Barnamálaráðherra eignaðist barn með táningspilti þegar hún var 22 ára

Í Speglinum á Rúv klukkan 18 sama dag var greint frá því Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, hafi eignast barn með sextán ára dreng þegar hún var 23 ára. Um hálftíma síðar sagði Ásthildur Lóa Þórsdóttir af sér sem ráðherra.

Yfirlit yfir tölvupósta

Hér fyrir neðan sjá yfirlit tölvupósta til forsætisráðuneytisins og svör ritarans við þeim póstum:

9. mars

12:37

Ábending/fyrirspurn send í gegnum vef Stjórnarráðsins

11. mars

12:13

Tölvupóstur sendur á

12. mars

14:12

Tölvupóstur frá ritara forsætisráðherra

13. mars

00:16

Tölvupóstur frá málshefjanda

13. mars

11:19

Tölvupóstur frá málshefjanda

14. mars

10:36

Tölvupóstur frá ritara forsætisráðherra

14. mars

10:56

Tölvupóstur frá málshefjanda

14. mars

11:39

Tölvupóstur frá ritara forsætisráðherra

14. mars

11:50

Tölvupóstur frá málshefjanda

14. mars

11:52

Tölvupóstur frá málshefjanda

14. mars

12:31

Tölvupóstur frá málshefjanda

17. mars

14:52

Tölvupóstur frá málshefjanda

17. mars

15:27

Tölvupóstur framsendur af ritara forsætisráðherra á aðstoðarmenn

Hér fyrir neðan sjá skjölin tvö sem fjölmiðlum bárust, tölvupósta úr málaskrá og tímalínu yfir þróun málsins hjá forsætisráðuneytinu.

Tengd skjöl

Tölvupóstar _ úr _ málaskrá PDF 607 KB

Sækja skjal

Tímalína PDF 77 KB

Sækja skjal

Nafnalisti

  • Ásthildurhjúkrunarfræðingur
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Eiríkur Ásmundsson
  • Kristín Ólafsdóttirframkvæmdastjóri Píeta samtakanna
  • Kristrúnkaupréttarhafi
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Martha Ricart
  • Ólafur Kjaran
  • Ólöf Björnsdóttir

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 1569 eindir í 121 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 84 málsgreinar eða 69,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,53.