Íþróttir

Sjáðu: Daníel Ingi komst ekki í úrslit á EM

Jóhann Páll Ástvaldsson

2025-03-06 20:24

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Evrópumótið innanhúss í frjálsíþróttum hófst í dag. Daníel Ingi Egilsson keppti í forkeppni í langstökki. Hann náði ekki í úrslit og stökk lengst 7,40 metra en bætti sig í öllum þremur stökkum sínum.

Daníel Ingi stökk 7,21 metra í fyrsta stökki. Hann nýtti stökkplankann nánast til hins ítrasta í öðru stökki sínu og var aðeins 1,2 sentímetrum frá ysta punkt hans.

Hann stökk 7,34 í öðru stökki sínu. Hann fór svo lengst í sínu síðasta stökki er hann fór 7,40 metra.

Sjáðu stökkin hans þrjú hér að neðan.

Lengst af var hann í 14. sæti af 17 keppendum. Efstu átta fóru áfram í úrslit.

Daníel Ingi sló 30 ára gamalt Íslandsmet á síðasta ári er hann stökk 8,21 metra og sló þar með met Jóns Arnars Magnússonar.

Mummi Lú

Sýnt beint á RÚVtveir íslenskir keppendur eftir

Sýnt er frá mótinu beint á RÚV frá 6. til 9. mars.

Erna Sóley Gunnarsdóttir keppir í forkeppni í kúluvarpi laugardaginn 8. mars klukkan 09:50. Úrslitin eru sunnudaginn 9. mars komist hún í þau.

Baldvin Þór Magnússon keppir í undanriðlum í 3000 metra hlaupi karla laugardaginn 8. mars klukkan 11:45. Úrslitin eru sunnudaginn 9. mars komist hann í þau.

Dagskráin á RÚV

6. mars-18:00 Ruv.is og á Rúv 2 kl. 22:25

7. mars-17:45 Ruv.is og á Rúv 2 kl. 22:25

8. mars-09:45 Rúv

8. mars-17:35 Rúv 2

9. mars-15:00 Rúv

Hér verður hægt fylgjast með beinni stöðuppfærslu á úrslitum í keppnisgreinum Evrópumótsins.

Nafnalisti

  • Baldvin Þór Magnússonmillivegalengdahlaupari
  • Daníel Ingi Egilssonstökkvari
  • Erna Sóley Gunnarsdóttirkúluvarpari
  • Jón Arnar Magnússontugþrautarkappi
  • Mummi Lúljósmyndari

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 239 eindir í 25 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 68,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,54.