Veiði

Alger samstaða gegn áformum um eldi

Ritstjórn mbl.is

2025-03-29 21:32

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fjölmennur fundur landeigenda og áhugamanna um laxveiðiár á Norðausturlandi og ferskvatnslífríki þeirra lýsti eindreginni samstöðu gegn áformum um sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Afstaða fundarmanna til málsins var könnuð með handauppréttingu og voru allir á móti áformunum.

Fundurinn var haldinn á Vopnafirði í dag á vegum Six Rivers Iceland sem leigir og rekur laxveiðiár í landshlutanum.

Yfirskrift fundarins var staða laxins, ógnir og tækifæri. Fimm fyrirlesarar fluttu erindi og ræddu stöðuna eins og hún blasir við. Stefán Hrafnsson gerði grein fyrir afar merkilegum rannsóknum sem Six Rivers Iceland stundar í ánum á svæðinu. Gunnar Örn Petersen framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga fór yfir störf landssambandsins og nefndi mikilvægi þess raddir almennings heyrðust þegar kæmi náttúruvernd og þeirri hagsmunabaráttu sem stöðugt stendur yfir.

Guðni Guðbergsson, sviðstjóri hjá Hafrannsóknastofnun fór yfir sviðið eins og það blasir við vísindunum.

Haraldur Eiríksson, leigutaki í Laxá í Kjós flutti áhugavert erindi þar sem hann setti fram þróun á verði veiðileyfi í nokkrum af helstu laxveiðiám landsins og voru tölurnar núvirtar. Þar mátti glögglega sjá þegar laxastofnar eiga undir högg sækja lækkuðu verðin umtalsvert. Haraldur taldi upp fleiri áhugaverðar ástæður sem hafa haft áhrif á verðmætasköpunina í gegnum tíðina.

Svo kom hún Katrín

Svo kom hún Katrín Oddsdóttir, lögmaður. Hún flutti hreina og klára eldmessu um reynslu sína af baráttu við stofnanir á Íslandi þegar kemur ábyrgð og ákvarðanatöku í tengslum við leyfisveitingar og heimildir fyrir sjókvíaeldi. Hún lýsti endalausri þrautagöngu til allra þeirra stofnana sem hafa með leyfisveitingar gera. Ég tók gömlu íslensku leiðina á þetta og mætti á staðinn, upplýsti Katrín. Niðurstaðan hennar er í það minnsta þríþætt. Forystumenn þeirra stofnana sem hún ræddi við voru mjög uppteknir af því þeir bæru bara ábyrgð á þessum hluta og engu öðru. Þá sagði Katrín freki kallinn næði sínu fram og einhvers konar meðvirkni virtist ríkja þegar kemur þessum iðnaði.

Pallborðsumræður fylgdu í kjölfarið og snerust þær mestu um sjókvíaeldi og áhyggjur fundarmanna af stöðu þeirra mála. Guðni Guðbergsson frá Hafrannsóknastofnun fékk flestar spurningarnar og snerust þær stærstum hluta um þær áhyggjur sem áður er vísað til. Í lok fundar voru gestir beðnir um rétta upp hönd ef þeir væru á móti áformum um sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Virtist sem allar hendur færu á loft. Þegar spurt var hverjir styttu sömu áform var engin hendi á lofti.

Fundurinn var virkilega áhugaverður fyrir margra hluta sakir og munu Sporðaköst á næstu dögum gera ítarlega grein fyrir ýmsu því sem hæst bar.

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.

102 cm

Hvítá við Iðu

Ársæll Þór Bjarnason

19. september 19.9.

101 cm

Víðidalsá

Stefán Elí Stefánsson

4. september 4.9.

101 cm

Laxá í Dölum

Hafþór Jónsson

27. ágúst 27.8.

102 cm

Haukadalsá

Ármann Andri Einarsson

23. ágúst 23.8.

103 cm

Laxá í Aðaldal

Birgir Ellert Birgisson

12. ágúst 12.8.

103 cm

Miðsvæði Laxá í Aðaldal

Máni Freyr Helgason

11. ágúst 11.8.

101 cm

Laxá í Aðaldal

Agnar Jón Ágústsson

10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Nafnalisti

  • Agnar Jón Ágústsson
  • Ármann Andri Einarsson
  • Ársæll Þór Bjarnasoneigandi heildverslunarinnar Core sem flytur inn orkudrykkinn Nocco
  • Birgir Ellert Birgisson
  • Dagurgestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar
  • Guðni Guðbergssonsviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun
  • Gunnar Örn Petersenframkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga
  • Hafþór Jónssonformaður hafnarstjórnar Vesturbyggðar
  • Haraldur Eiríkssonvakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands
  • Iðaviðskiptafræðingur
  • KatrínJakobsdóttir
  • Katrín Oddsdóttirlögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands
  • Máni Freyr Helgason
  • Six Rivers Icelandlangtímaverkefni sem ætlað er að hafa til framtíðar jákvæð áhrif á bæði svæði og samfélag
  • Stefán Elí Stefánssonyfirmatreiðslumaður
  • Stefán Hrafnssonleiðsögumaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 495 eindir í 56 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 46 málsgreinar eða 82,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.