Viðskipti

Tekur yfir rekstur Dollar og Thrifty

Atli Ísleifsson

2025-04-03 11:41

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Bílaleigan Hertz hefur tekið yfir rekstur bílaleigumerkjanna Dollar Rent A Car og Thrifty Car Rental á Íslandi.

Í tilkynningu segir þessi breyting í samræmi við stefnu móðurfélagsins og ákvörðun Hertz Global Holdings, sem keypti Dollar Thrifty Automotive Group árið 2012.

Með þessari aðgerð styrkir Hertz enn frekar stöðu sína á íslenskum bílaleigumarkaði og eykur fjölbreytni í þjónustuframboði til viðskiptavina.

Vörumerkin Dollar og Thrifty hafa frá árinu 2009 verið starfrækt á Íslandi af Brimborg ehf. en færast yfir til Hertz á Íslandi.

Við erum gríðarlega ánægð með þessa yfirfærslu og erum spennt fyrir þeim tækifærum sem hún færir okkur, segir Sigurður Berndsen, forstjóri Hertz á Íslandi. Með því bæta Dollar og Thrifty við okkar vörumerkjafjölskyldu getum við boðið viðskiptavinum enn fjölbreyttari þjónustu og úrval af bílaleigubílum, sem mun styrkja stöðu okkar á markaðnum og sérstaklega til erlendra ferðamanna.

Viðskiptavinir Dollar og Thrifty geta áfram treyst á hágæða þjónustu og fjölbreytt úrval bílaleigubíla. Allar bókanir sem gerðar hafa verið hjá Dollar og Thrifty fyrir og eftir 1. apríl 2025 munu haldast óbreyttar og engar aðgerðir eru nauðsynlegar af hálfu viðskiptavina, segir í tilkynningunni.

Nafnalisti

  • A Car
  • Global Holdings
  • Sigurður Berndsenframkvæmdastjóri bílaleigunnar Hertz
  • Thriftybílaleiga
  • Thrifty Car Rental

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 190 eindir í 8 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 6 málsgreinar eða 75,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.