EfnahagsmálViðskipti

Ásgeir: Betri niðurstaða en leið Bjarna

Ritstjórn mbl.is

2025-03-11 10:34

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir fréttir gærdagsins um mögulegt samkomulag milli ríkis og lífeyrissjóða um uppgjör á ÍL-sjóði vera góðar fréttir og betri en þá niðurstöðu fara með sjóðinn í þrot líkt og stefnt hafði verið áður með tilheyrandi áhættu.

Þetta var meðal þess sem kom fram á opnum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem rætt var um síðasta rit Peningamála Seðlabankans, stöðu peningastefnunnar og ýmsar áskoranir sem standa henni fyrir höndum.

Uppgjör upp á 651 milljarð

Arna Lára Jónsdóttir, formaður nefndarinnar og þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Ásgeir um afstöðu hans til þeirra tillagna sem ÍL-sjóður og fjármálaráðuneytið settu fram, en þær komu fram í kjölfar vinnu viðræðunefndar 18 lífeyrissjóða, sem eiga kröfur á hendur ÍL-sjóði, og fjármálaráðuneytisins.

Var þar lagt til ÍL-sjóður og ríkið muni afhenda kröfuhöfunum skuldabréf upp á 540 milljarða, önnur verðbréf upp á 38 milljarða, reiðufé í gjaldeyri upp á 55 milljarða og 18 milljarða í íslenskum krónum, samtals eignir upp á 651 milljarð.

Betri niðurstaða en fara með sjóðinn í þrot

Ásgeir svaraði því til hann teldi slíkt uppgjör vera jákvætt. Eftir því sem við sjáum þá er þetta uppgjör við Íbúðalánasjóð góðar fréttir og einhverju leyti betri niðurstaða en fara með sjóðinn í þrot eins og stefnt var , sagði Ásgeir.

Vísaði hann þar til hugmynda Bjarna Benediktsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, sem hafði lagt til áformaskjal um framlagningu lagafrumvarps á Alþingi sem hefði heimilað slit og uppgjör ÍL-sjóðs, en lífeyrissjóðirnir tóku ekki vel í þá tillögu og var líklegt slík leið hefði endað í málaferlum með tilheyrandi óvissu fyrir alla málsaðila.

Telur leiðina ekki hafa áhrif á vaxtalækkunarferlið

Ásgeir segir með nýju leiðinni verið gefa út skuldabréf sem verði seljanleg og gott fyrir lífeyrissjóðina hreinsa núverandi bréf ÍL-sjóðs úr eignasafninu og eyða áhættunni. Segir hann þessar fréttir því í meginatriðum vera tiltölulegar góðar fréttir.

Þá sagði Ásgeir hann sæi ekki uppgjörið og útgáfa ríkisins á nýjum skuldabréfum myndi hafa áhrif á vaxtalækkunarferil bankans, allavega ekki til skemmri tíma. Hefur bankinn síðan í nóvember lækkað stýrivexti sína úr 9,25% niður í 8% og sagðist Ásgeir á fundinum búast við frekari lækkun verðbólgu og bankinn reyndi lækka vexti samhliða því.

Nafnalisti

  • Arna Lára Jónsdóttirbæjarstjóri
  • Ásgeir JónssonSeðlabankastjóri
  • Bjarni Benediktssonformaður SJálfstæðisflokksins
  • ÍL-sjóðurútgefandi

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 385 eindir í 14 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 85,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,77.