Íþróttir

For­seti UEFA segir 64 þjóða HM vera slæma hug­mynd

Óskar Ófeigur Jónsson

2025-04-03 22:18

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Aleksander Ceferin, forseti knattspyrnusambands Evrópu er ekki hrifinn þeirri hugmynd fjölga enn meira á heimsmeistaramóti karla í fótbolta.

FIFA er velta því fyrir sér fjölga þjóðum í úrslitakeppni HM upp í 64 lið. Næsta HM fer fram næsta sumar og þar munu 48 þjóðir taka þátt en 32 þjóðir voru á síðasta heimsmeistaramóti 2022.

Þetta hefur verið í umræðunni eftir tillaga kom frá stjórnarmanni frá Úrúgvæ á ársþingi Alþjóða knattspyrnusambandsins. ESPN segir frá.

Það væri þá verið fjölga þjóðum um sextán á tveimur heimsmeistaramótum í röð og það án þess reynsla komin á 48 þjóða heimsmeistarakeppni.

Þessi tillaga kom mér jafnvel meira á óvart en ykkur, sagði Aleksander Ceferin á blaðamannafundi eftir ársþing UEFA í Belgrad í Serbíu.

Ég tel þetta slæm hugmynd, sagði Ceferin sem er líka varaforseti FIFA. Gianni Infantino, forseti FIFA, vill fjölga þátttökuþjóðum enn meira, og er reyna koma þessu í gegn.

Svo margar þátttökuþjóðir hefðu auðvitað það í för mér sér gæðin myndu minnka og það þyrfti einnig koma fyrir 128 leikjum á rúmum mánuði.

Þetta er ekki góð hugmynd fyrir sjálfa heimsmeistarakeppnina og þetta er heldur ekki gott fyrir undankeppnina, sagði Ceferin.

UEFA er með sextán sæti á HM 2026 og það hefur kallað á breytta undankeppni. eru riðlarnir tólf og sumar þjóðir spila færri leiki en öll undankeppnin fer fram í ár.

Spánn og Portúgal halda HM 2030 ásamt Marokkó en Suðurameríkuþjóðirnar Argentína, Paragvæ og Úrúgvæ hýsa einn leik í byrjun móts til halda upp á það eru hundrað ár liðin frá fyrstu heimsmeistarakeppninni sem fór fram í Úrúgvæ 1930.

Það er skrýtið við fengum ekki vita neitt um þessa tillögu áður en hún kom fyrir þingið. Ég veit ekki hvaðan hún kom, sagði Ceferin.

Nafnalisti

  • Aleksander Ceferinforseti Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA
  • Gianni Infantinoforseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 331 eind í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 15 málsgreinar eða 93,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,87.