Viðskipti

„Svartari sviðs­mynd en flestir bjuggust við“

Tómas Arnar Þorláksson

2025-04-03 22:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Forstjóri Össurar segir nýjan tíu prósenta toll á allan útflutning til Bandaríkjanna vera mikil vonbrigði, um ræða mikilvægasta markað fyrirtækisins. Nýir lágmarkstollar á allan innflutning til Bandaríkjanna taka gildi á laugardaginn.

Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnti nýja tolla á allan innflutning til landsins og lýsti yfir frelsisdegi í gær. Annars vegar er um ræða tíu prósenta lágmarkstoll og hins vegar það sem var kynnt sem gagnkvæmir tollar en svo virðist sem þeir taki mið af viðskiptahalla Bandaríkjanna gagnvart tilteknum ríkjunum. Evrópusambandið og Kína hefur heitið mótvægisaðgerðum.

Íslenskar vörur munu bera tíu prósenta lágmarkstollinn. Ísland kemur því betur út en flest ríki Evrópu, þar sem vörur frá Evrópusambandinu munu bera 20% toll. Þá bera vörur frá öðrum ríkjum innan fríverslunarsamtaka Evrópu einnig hærri toll en Ísland. Noregur 15%, Sviss 31% og Lichenstein 37%. Tollar á Kína nema 54%, en að auki voru lagði mismunandi tollar á ýmiss ríki í Asíu. Einnig er lagður 25% tollur á alla erlenda bíla. Lágmarkstollarnir taka gildi á laugardaginn en aðrir tollar á miðvikudag.

Tollar vonbrigði á lang mikilvægasta markaðnum

Um er ræða mikilvægasta markað Össurar en 45% tekna fyrirtækisins koma eru frá útflutningi til Bandaríkjanna. Forstjóri fyrirtækisins segir nýju tollana vera vonbrigði.

Það stefndi í það yrðu breytingar en ég held það óhætt segja þetta eitthvað svartari sviðsmynd en flestir bjuggust við. Auðvitað breytir þetta einhverju leyti okkar rekstrarumhverfi og rekstrarmódeli og hækkar kostnað og það er enn þá erfitt sjá alveg til enda. Þó þessar breytingar hafi skýrt ýmislegt í hvað stefnir í gær þá er mörgum spurningum ósvarað.

Sem dæmi nefnir Sveinn mögulega muni koma í ljós hvaða vörur verða undanskildar tollum og óljóst hvaða mótvægisaðgerða önnur ríki muni grípa til.

Þetta mun áfram vera mjög mikilvægur markaður fyrir okkur. Við höfum verið fjárfesta mikið í mörkuðum þar sem eru kannski minna þróuð heilbrigðiskerfi og það verður áfram lykilskref í okkar starfsemi.

Leitað verði leiða til aðlagast nýjum veruleika. Nýtt umhverfi alþjóðaviðskipta blasi við.

Þegar við erum komin í svona umhverfi þar sem lönd eins og Bandaríkin sem eru með stóran neytendamarkað er nota það sem einhvers konar tól til styrkja sína stöðu. Það mun valda því Ísland þarf taka afstöðu, mjög vel yfirvegaða afstöðu, um hvar okkar hagsmunum er best borgið.

Áhyggjur til lengri tíma

Stærsti hluti útflutningsvara Íslands til Bandaríkjanna eru lyf og sjávarafurðir en Ægir Páll Friðbertsson, forstjóri Iceland Seafood eins stærsta útflytjenda íslenskra sjávarafurða, segir tollana ekki hafa mikil áhrif á rekstur þeirra í bili.

En aftur á móti til langs tíma þá er helsti áhyggjuliðurinn við sjáum fisk eða sjávarafurðir sem hafa verið seldar til Bandaríkjanna til dæmis frá Asíu, koma inn í Evrópu. Og aðra okkar markaði og keppa við okkur á þeim svæðum.

Nafnalisti

  • Ægir Páll Friðbertssonframkvæmdastjóri
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Iceland Seafoodsjávarútvegsfyrirtæki
  • Össurstoðtækjafyrirtæki
  • Sveinnsonur Björns Jónssonar, ritstjóra, alþm. og ráðherra, og k.h., Elísabetar G. Sveinsdóttur húsfreyju, systur Hallgríms biskups, og Sigríðar, móður Haraldar Níelssonar guðfræðiprófessors

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 497 eindir í 29 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 82,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.