Stjórnmál

Engin umræða farið fram um viðbrögð Íslands

Ritstjórn mbl.is

2025-04-03 11:55

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ekki liggur fyrir um hvort Ísland taki þátt í hefndaraðgerðum Evrópusambandsins gegn tollum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.

Þetta kom fram í svari Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Hildar Sverrisdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi.

Viðskiptahalli nærtækasta skýringin

Hildur benti á Ísland hefði sloppið vel við þá tolla sem Donald Trump boðaði í gærkvöldi, miðað við önnur ríki, og spurði Daða hvað gæti skýrt það.

Svaraði Daði erfitt væri spá fyrir um á hvaða forsendum Bandaríkjamenn tækju ákvarðanir, en líklega skýrðist það af viðskiptahalla Íslands gagnvart Bandaríkjunum.

Það er markmið þessara aðgerða draga úr viðskiptahalla Bandaríkjanna. Það mundi eðlilega skjóta nokkuð skökku við ráðast á þau hagkerfi sem ekki leggja til hans, sagði fjármála- og efnahagsráðherrann.

Ísland ekki höfuðból tollfrelsis

Þá tók Hildur aftur til máls og rifjaði upp Bjarni Benediktsson, sem fjármála- og efnahagsráðherra árið 2014, hefði afnumið almenn vörugjöld á innflutning og ári síðar alla tolla á innflutning utan matvæla. Það hefði leitt til betri kjara fyrir íslensk heimili, neytendur og fyrirtæki. Því væri mikilvægt viðhalda tollleysi á innflutningi til landsins.

hefur Evrópusambandið sagt það tilbúið ráðast í hefndartolla gegn Bandaríkjunum. [Þá] liggur beinast við spyrja hæstvirtan ráðherra hvort til greina komi taka þátt í slíkum aðgerðum með Evrópusambandinu og vinda þannig ofan af ávinningi tollaafnáms og þá í beinu framhaldi hvort hæstvirtur ráðherra telji hagsmunum Íslands betur borgið innan ESB í þessum efnum, spurði Hildur.

Daði Már svaraði engin umræða hefði farið fram um hugsanleg viðbrögð Íslands en tók undir hóflegir eða engir tollar væru neytendum til hagsbóta.

Það er samt kannski rétt árétta Ísland er meðal þeirra þjóða í heiminum sem enn þá eru með frekar háa tolla og það kemur til vegna þess sem háttvirtur þingmaður nefndi, við erum með nokkuð umfangsmikla tollvernd á landbúnaðarvörum.

Þannig það er ekki þannig Ísland eitthvert höfuðból tollfrelsis, þvert á móti þá stöndum við frekar illa í samanburði við önnur lönd hvað þetta varðar. Á því eru auðvitað skýringar. En varðandi viðbrögð okkar þá liggur ekkert fyrir um neitt til slíkt, svaraði ráðherrann.

Nafnalisti

  • Bjarni Benediktssonformaður SJálfstæðisflokksins
  • Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Donald Trumps Bandaríkjaforsetaþar gert ráð fyrir 5,7 milljörðum dollara í múrinn sem forsetinn vill reisa á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó
  • Hildur Sverrisdóttirfyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 381 eind í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 77,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,69.