Verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður skilar árangri

Innanríkisráðuneyti

2025-03-11 10:47

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur undirritað samning um áframhald verkefnisins Loftslagsvænn landbúnaður fyrir árið 2025.

Verkefnið hófst árið 2020 og hefur meginmarkmiði draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði og landnotkun og auka kolefnisbindingu í jarðvegi og gróðri. Um er ræða samstarfsverkefni matvælaráðuneytisins, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Lands og Skógar. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins tók einnig þátt í verkefninu fram til ársins 2024.

Þátttakendur í verkefninu eru 55 og hefur fjölgað árlega frá upphafi. Hópur þátttakenda samanstendur af sauðfjárbúum, nautgripabúum, blönduðum búum og garðyrkjubúum. Árið 2024 var megináhersla lögð á leggja mat á árangur og reynslu og móta framtíðarfyrirkomulag verkefnisins þannig megi til allra bænda. Bændur sem hafa tekið þátt í verkefninu hafa fengið aðgang ráðgjöf og fræðslu um loftslagsmál og hvatningu til markvissra loftlagsaðgerða.

Ráðgjafafyrirtækið Environice vann árangursmat á verkefninu og samkvæmt skýrslu fyrirtækisins hefur það skilað miklu sem fræðslu- og ráðgjafarverkefni fyrir bændur um hvernig gera megi búreksturinn loftslagsvænni og jafnframt auka rekstrarhagkvæmni. Þekking og reynsla af verkefninu er einnig mikilvæg við þróun nýs stuðningskerfis fyrir landbúnað sem styður við loftslagmarkmið framtíðarinnar.

Upphaflega byggðist verkefnið á fræðslustarfi, þar sem bændur fengu leiðbeiningar um hvernig draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda. Samkvæmt nýjum samningi verður aukin áhersla lögð á hvetja þá hópa sem lengst hafa verið í verkefninu til deila þekkingu og reynslu af verkefninu og miðla til annarra bænda. Þá verður aukin áhersla lögð á upplýsingagjöf um verkefnið út á við og gera fræðsluefni aðgengilegt fyrir alla bændur, m.a. á heimasíðu verkefnisins.

Framhald þessa verkefnis er fagnaðarefni sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Það er mikilvægt gefa þeim þátttakendum sem hófu þátttöku árin 20222023 tækifæri á halda áfram á sinni vegferð. Verkefnið kallast jafnframt á við áherslumál ríkisstjórnarinnar, beita markvissum loftslagsaðgerðum svo Ísland nái kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 og verði áfram í fremstu röð í baráttu gegn hnattrænni hlýnun.

Nafnalisti

  • Environiceráðgjafarfyrirtæki
  • Hanna KatrínFriðriksson

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 328 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 81,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,69.