Stjórnmál

Svandís Svavarsdóttir sneri aftur

Ritstjórn mbl.is

2025-03-09 14:51

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Viðurkennast verður oft hefur gengið meira á fyrir íslensku stjórnmálafólki en það gerði í vikunni sem leið og óhætt er segja einhvers konar lægð hafi legið yfir samfélagsmiðlum hjá helstu leikendum þess sviðs.

Í nýjasta þætti Spursmála, sem sýndur var hér á mbl.is síðastliðinn föstudag, var farið yfir það sem hæst bar á góma á félagsmiðlum pólitíkusana. Yfirferðina í heild sinni sjá í meðfylgjandi myndbandsspilara en henni er einnig gert skil hér að neðan.

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Það sem var fyrirferðarmest á samfélagsmiðlum í liðinni viku var án efa Landsfundur Sjálfstæðisflokksins, sem minnti óneitanlega á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Svo sveitt og spennuþrungið leit það partí út fyrir vera.

Sjálfstæðismenn kusu sér nýja forystu og til gera langa sögu stutta þá vann ísdrottningin, Guðrún Hafsteinsdóttir, bardagakindina, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, Diljá Mist Einarsdóttir tapaði fyrir kynjakvótakarlinum, Jens Garðari Helgasyni, Bjarni Benediktsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kvöddu og getum við þá bara farið tala um eitthvað allt annað.

Illu blóði hleypt af stað

En talandi um Diljá Mist. Margur er knár þótt hann smár og allt það en í óundirbúnum fyrirspurnartíma á þinginu í vikunni hleypti hún illu blóði í heilbrigðisráðherra, Ölmu Möller, sem fékk blóðnasir í ræðustól alþingis þegar hún veitti lillunni andsvar.

Hagræðingarhetjur Kristrúnar

Hagræðingarhetjur landsins skiluðu tillögum til ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur þar sem yfir 4000 íslenskir baunateljarar höfðu sent inn hugmyndir af því hvernig best herða sultarólina.

Alltaf spara!

Johnny Bravo eða öllu heldur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, stærði sig af ákvörðun sinni um falla frá drjúgum fjárheimildum til orku- og umhverfisráðuneytisins.

Leikskólinn við Austurvöll

Í leikskólanum við Austurvöll leiruðu þingmenn fígúrur í öllum regnboganslitum og hétu því hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna ávallt leiðarljósi í störfum sínum.

Spennan í hámarki

Sanna Magdalena Mörtudóttir réði sér ekki fyrir kæti og var mega spennt yfir því kynna aðgerðaráætlun nýs borgarmeirihluta. Þar koma alls kyns spretthópar, stýrihópar, selir og kópar við sögu enda brýnast fúlgum fjár í bæta aðbúnað selanna í Húsdýragarðinumþað sér það hvert mannsbarn.

Heimgreiðslur til foreldra

Nema kannski Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, sem skaut föstum skotum á nýjan borgarmeirihluta en hún vill setja meira púður í greiða úr leikskólavandanum með tillögu um heimgreiðslur til foreldra.

Svandís Svavarsdóttir kveikti líf

Undur og stórmerki gerðust í vikunni þegar skyndilega kviknaði líf á Instagram-reikningi Vinstri grænna. Þar kenndi Svandís Svavarsdóttir ungum VG-liðum frumvarpalestur. Mikið var gott sjá hana aftur.

Hitti naglann á höfuðið

Snorri Másson var ekkert rosalega öflugur á samfélagsmiðlum í vikunni en hann hitti þó naglann á höfuðið með þegar hann birti færslu á Facebook og gagnrýndi þýðingar á tölvupóstum frá skólayfirvöldum og stofnunum til innflytjenda.

Blómlegri borg

Heiða Björg Hilmisdóttir leiddi sinn fyrsta borgarstjórnarfund í hlutverki borgarstjóra og kynnti samstarfsyfirlýsinguna sem inniheldur 25 tillögur blómlegri borg byggða á félagshyggjugrunni. Næstu 14 mánuðir verða legendary!

Nýjasta þátt Spursmála í heild sinni heyra og sjá í spilaranum hér að neðan:

Nafnalisti

  • Alma Möllerlandlæknir
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttirnýsköpunarráðherra
  • Bjarni Benediktssonformaður SJálfstæðisflokksins
  • Diljá Mist Einarsdóttirformaður utanríkismálanefndar Alþingis
  • Facebookbandarískur samfélagsmiðill
  • Guðrún Hafsteinsdóttirfyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins
  • Heiða Björg Hilmisdóttirformaður
  • Jens Garðar Helgasonframkvæmdastjóri Laxa fiskeldis
  • Jóhann Páll Jóhannssonfyrrverandi blaðamaður á Stundinni
  • Johnny Bravo
  • Kristrúnkaupréttarhafi
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Magdalena Mörtudóttirborgarfulltrúi
  • Magnea Gná Jóhannsdóttirvaraforseti borgarstjórnar
  • Snorri Mássonfréttamaður
  • Svandís Svavarsdóttirþingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi umhverfisráðherra
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttirnýsköpunarráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 501 eind í 31 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 25 málsgreinar eða 80,6%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.