Slys og lögreglumál

Bættu blaða­manni ó­vart í Signal-hóp um á­rásir á Húta

Samúel Karl Ólason

2025-03-24 18:53

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Svo virðist sem Mike Waltz, þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hafi fyrir mistök bætt blaðamanni inn í spjallhóp þar sem hann, JD Vanve varaforseti, Pete Hegseth varnarmálaráðherra og fleiri töluðu um hvort Bandaríkin ættu hefja umfangsmiklar árásir á Húta í Jemen og hvernig.

Í þessum hópi, í samskiptaforritinu Signal, töluðu þeir meðal annars einnig um sameiginlega fyrirlitningu þeirra í garð Evrópu. Þá deildu þeir leynilegum upplýsingum fyrir árásirnar og ætlunum um skotmörk, svo eitthvað nefnt, í hópnum.

Blaðamaðurinn Jeffrey Goldberg, sem vinnur sem ritstjóri The Atlantic.

Bætt í hópinn nokkrum dögum fyrir árásirnar

Bandaríkjamenn hófu þann 15. mars umfangsmiklar árásir gegn Hútum í Jemen, sem ráðamenn vestanhafs segja ætlað binda enda á árásir þeirra á frakt- og herskip á Rauðahafi, sem staðið hafa yfir um nokkuð skeið.

Frá því hernaður Ísraela gegn Hamas á Gasaströndinni hófst í október 2023 hafa Hútar gert ítrekaðar dróna- og eldflaugaárásir á fraktskip og herskip á Rauðahafi. Hútar hafa gert árásir á rúmlega hundrað fraktskip með eldflaugum og drónum. Tvo skip hafa sokkið og fjórir dáið í þessum árásum.

Verulega hefur dregið úr þessum árásum að undanförnu, að hluta til vegna færri siglinga um svæðið, en leiðtogar Húta lýstu því yfir fyrr í mánuðinum þeir ætluðu hefja þær aftur.

Nokkrum dögum áður en árásirnar hófust fékk blaðamaður Atlantic skilaboð á Signal um einhver sem gekk undir nafninu Michael Waltz vildi eiga samskipti við hann. Þeir höfðu hist áður og blaðamaðurinn samþykkti þetta en taldi mögulegt þarna væri einhver reyna gabba hann.

Svo virðist ekki vera en tveimur dögum síðar fékk hann skilaboð um búið væri bæta honum í spjallhóp, með titil um Húta, og voru þar skilaboð frá Waltz um fund sem hafði átt sér stað í ástandsherberginu svokallaða í Hvíta húsinu og verið væri gera áætlanir um næstu skref.

Á næstu mínútum birtust í hópnum skilaboð sem virtust vera frá Marco Rubio, utanríkisráðherra, JD Vance, varaforseta, Tulsi Gabbard, yfirmanni leyniþjónusta Bandaríkjanna, Scott Bessent, fjármálaráðherra, Pete Hegset, varnarmálaráðherra, John Ratcliffe, yfirmanni CIA, Steve Witkoff, erindreka Trumps gagnvart Mið-Austurlöndum og Úkraínu, og fleirum þar sem þau sögðu hverjir frá þeim myndu taka þátt í umræðunum.

Þetta var fimmtudaginn 13. mars.

Á þessum tíma segist blaðamaðurinn hafa verið sannfærður um einhver væri reyna gabba hann. Það væri ómögulegt æðstu embættismenn Bandaríkjanna í öryggismálum væru leggja á ráðin um hefja árásir á annað ríki í samskiptaforritinu Signal og hefðu fyrir mistök bætt honum, ritstjóra Atlantic, í hópinn.

Vance vildi bíða

Á föstudeginum sendi aðgangur JD Vance skilaboð í hópinn þar sem hann sagðist telja þau væru gera mistök. Bandaríkjamenn hefðu ekki mikilla hagsmuna gæta þegar kæmi Súesskurðinum. Hagsmunir Evrópu væru mun meiri og fólk myndi ekki skilja af hverju verið væri gera þessar árásir.

Vance sagðist svo ekki viss um Trump væri meðvitaður um það hversu mótsagnakennd þessar aðgerðir væru, miðað við yfirlýsingar hans í garð Evrópu að undanförnu. Vance velti vöngum yfir því fresta árásum í mánuði og skoða stöðuna betur.

Þá svaraði Joe Kent, sem er maður sem Trump hefur tilnefnt til stýra gagnhryðjuverkastarfsemi Bandaríkjanna og sagði staðan yrði sama eftir mánuð. Það liggi ekki á neinu þegar kæmi árásum á Húta.

John Ratcliffe, sem er nafn yfirmanns CIA, svaraði þá með skilaboðum sem blaðamaður Atlantic segir tengist yfirstandandi aðgerð stofnunarinnar og hafi innihaldið leynilegar upplýsingar.

Hegseth tjáði sig þá næst og sagði þetta yrði alltaf vandmeðfarið. Enginn vissi hverjir Hútar væru og því væri mikilvægt keyra á skilaboðum um Joe Biden, fyrrverandi forseta, hefði mistekist stöðva þá og þeir væru fjármagnaðir af klerkastjórninni í Íran.

Hann sagði það myndi líklega engu breyta bíða í nokkrar vikur. Hætt væri samt við því upplýsingar um ætlanir þeirra myndu leka út og þeir myndu líta illa út.

Segja þær áhyggjur hafi átt rétt á sér, þar sem ritstjóri Atlantic var lesa umræðu þeirra.

Hegseth sagði þetta í raun ekki snúast um Húta. Heldur snerist þetta um opna á mikilvæga siglingaleið aftur og endurbyggja fælingarmátt Bandaríkjanna, sem Biden hefði látið grotna niður. Bregðast við af hörku til koma í veg fyrir frekari árásir.

AUMKUNARVERÐ Evrópa

Mike Waltz birti því næst upplýsingar um skipasiglingar um Súesskurðinn og kvartaði yfir því hvað flotar Evrópu væru veikburða.]] Hvort sem það er núna eða eftir nokkrar vikur, verða það Bandaríkin sem munu opna þessar skipaleiðir. [[Waltz sagði svo Trump hefði beðið um kostnaðurinn við þessar aðgerðir yrði tekinn saman og Evrópa yrði rukkuð.

Þá svaraði JD Vance og fór hann hörðum orðum um Evrópu, eins og hann hefur ítrekað gert áður.]] Ef okkur finnst við eiga gera þetta, gerum þetta. Ég bara hata bjarga Evrópu úr vandanum aftur [[Hegseth, varnarmálaráðherrann, tók undir það og sagðist deila fyrirlitningu Vance á því hvernig Evrópa skýldi sér bakvið herafla Bandaríkjanna.]] Það er AUMKUNARVERT [[Hegseth sagði Waltz þó hafa rétt fyrir sér um engir aðrir gætu stöðvað Húta nema Bandaríkjamenn.

Blaðamaður Atlantic segir þá hafi einhver sem gekk undir nafninu S M og líklega Stephen Miller, einn æðsti ráðgjafi Trumps, tjáð sig. Hann sagði gera þyrfti ráðamönnum Evrópu og Egyptalands ljóst hvað Bandaríkjamenn vildu í staðinn og hvernig ætti tryggja það.]] Ef Evrópa launar okkur ekki greiðan, hvað þá? Ef Bandaríkin opna þessar siglingaleiðir aftur með tilheyrandi kostnaði verður fást einhver hagnaður í staðinn. [[Hegseth sagðist sammála og þannig lauk samskiptunum þann daginn.

Deildu leynilegum upplýsingum um árásir

Snemma morgni laugardagsins 15. mars, dagsins sem árásirnar hófust, sendi Hegseth svo aftur skilaboð í hópinn. Blaðamaður Atlantic segist ekki ætla fara út í þau skilaboð þar sem þau hafi í raun snúist um háleynilegar ætlanir Bandaríkjanna og vegna þess innihald þeirra gæti mögulega verið notað gegn starfsmönnum leyniþjónusta ríkisins.

Skilaboðin innihéldu einnig upplýsingar um skotmörk í Jemen, hvaða vopn yrðu notuð og í hvaða röð árásir yrðu gerðar á þessi skotmörk. Þar stóð nákvæmlega hvenær fyrstu árásirnar myndu hefjast og beið blaðamaðurinn þá með augun límd við ská síma sinn á bílastæði verslunar, eftir því hvort þessi samskiptahópur væri raunverulegur eða ekki.

Svo reyndist svo sannarlega vera, því sprengjurnar byrjuðu fljótt lenda í Jemen.

Því fór blaðamaðurinn aftur í Signal þar sem Waltz hafði sent inn skilaboð. Þar hrósaði hann öllum fyrir frábært starf. Ratcliffe, Rubio og aðrir tóku undir. Það gerði Susie Wiles, starfsmannastjóri Hvíta hússins einnig.

Blaðamaðurinn yfirgaf hópinn og í morgun sendi hann út tölvupósta og skilaboð til Waltz á Signal, þar sem hann spurði meðal annars hvort þessi hópur hefði verið raunverulegur og hvort þau hefðu vitað honum hefði verið bætt inn í hópinn á sínum tíma.

Talsmaður þjóðaröryggisráðsins svaraði og sagði hópinn raunverulegan og verið væri fara yfir hvernig það hefði gerst honum hefði verið bætt þar inn.]] Þessi þráður er skýrt dæmi um þá djúpu og umfangsmiklu umhugsun og samráð sem á sér stað milli háttsettra embættismanna. [[Talsmaður Vance sagði í svari sínu þrátt fyrir hvernig það liti út í þræðinum, væri hugsunargangur hans í takt við Trump. Hann styddi utanríkisstefnu Trumps fullu.

Líklega lögbrot

Notkun Signal til þessarar umræðu og skipulagningar er mögulega brot á lögum Bandaríkjanna varðandi varnir gegn njósnum, samkvæmt sérfræðingum sem Atlantic ræddi við. Þeir sögðu samskiptaforritið ekki vottað af stjórnvöldum og innan stjórnkerfis Bandaríkjanna hægt finna aðrar og öruggari leiðir fyrir samskipti sem þessi.

Þá hafði Waltz stillt hópinn þannig skilaboð í honum hverfa innan nokkurra vikna. Lög Bandaríkjanna segja til um geyma eigi opinber gögn og samskipti og eru skilaboð eins og smáskilaboð og opinber samskipti gegnum netið skilgreind sem opinber gögn.

Eins og frægt er var Trump á árum áður harðlega gagnrýninn á Hillary Clinton, fyrrverandi mótframbjóðanda sinn, fyrir nota einkavefþjón fyrir opinbera tölvupósta á sínum tíma. Meðal annars hefur Trump ítrekað kallað eftir því hún hefði átt enda í fangelsi vegna þessa.

Mike Waltz gagnrýndi dómsmálaráðuneytið árið 2023 fyrir grípa ekki til aðgerða þegar í ljós kom þjóðaröryggisráðgjafi Bidens hafði á árum áður sent leynilegar upplýsingar á þetta póstfang Clinton.

Biden’s sitting National Security Advisor Jake Sullivan sent Top Secret messages to Hillary Clinton’s private account.

And what did DOJ do about it? Not a damn thing. https://t.co/VJCx9Zritn.]]— Mike Waltz (@michaelgwaltz) June 12, 2023

Hegseth hefur einnig verið gagnrýninn á meðhöndlun leynilegra upplýsinga í forsetatíð Bidens.

Pete Hegseth in 2023 on Biden handling classified documents flippantly: If at the very top there's no accountability, then we have two tiers of justice. pic.twitter.com/GHYBEqrP 5c]]-Matthew Gertz (@MattGertz) March 24, 2025

Trump sjálfur var spurður út í málið í dag. Hann sagðist ekki hafa heyrt af því en tók fram hann væri ekki aðdáandi Atlantic.

Trump on his cabinet members using Signal to text war plans to a reporter: I don't know anything about it. I'm not a big fan of The Atlantic. To be it's a magazine that's going out of business. But I know nothing about it. You're saying that they had what? pic.twitter.com/cBl 0 g 40 tsm]]-Aaron Rupar (@atrupar) March 24, 2025

Nafnalisti

  • Aaron Ruparblaðamaður VOX
  • But I
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Hillary Clintonfyrrverandi forsetaframbjóðandi Demókrata
  • Hillary Clinton’s
  • I'mlag
  • Iffinnsksænskt vátryggingafyrirtæki
  • JD Vance
  • JD Vanve
  • Jeffrey Goldbergritstjóri The Atlantic
  • Joe Bidenfyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna
  • Joe Kent
  • John Ratcliffenúverandi yfirmaður leyniþjónustustofnanna Bandaríkjanna
  • Junenefnilega hamskiptir
  • Marchaðstoðarmaður Rangnick
  • Marco Rubioöldungadeildarþingmaður
  • Matthew Gert
  • Michael Waltz
  • Mike Waltzrepúblikani
  • National Security Advisor Jake Sullivan
  • Pete Hegset
  • Pete Hegseth
  • Pete Hegseth in
  • Scott Bessent
  • Signalsamskiptaforrit
  • Stephen Millerráðgjafi Trumps
  • Steve Witkoff
  • Susie Wiles
  • The Atlanticbandarískt tímarit
  • Top Secret
  • Tulsi Gabbardfulltrúadeildarþingkona

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 1674 eindir í 84 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 56 málsgreinar eða 66,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.