10,5 milljarðar í nýtt Marriott-hótel

Ritstjórn mbl.is

2025-04-04 08:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fasteignafélagið Íþaka áformar hefja í haust uppbyggingu 304 herbergja hótels í Borgartúni í Reykjavík.

Jóhann Sigurðsson, sem rekur Hótel Cabin í Borgartúni, Hótel Örk í Hveragerði og Hótel Klett í Mjölnisholti, mun reka hótelið sem áformað er opna vorið 2028.

Við erum með sérleyfi frá Marriott og ætlum opna hér Moxy-hótel, sem er það vörumerki innan Marriott-keðjunnar sem hefur vaxið hraðast síðustu ár, segir Jóhann um áformin.

Fjármögnun tryggð

Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Íþöku, segir búið tryggja fjármögnun vegna þessarar uppbyggingar en heildar fjárfestingarkostnaður er um 10,5 milljarðar króna án virðisaukaskatts.

Íþaka leigir Íslandshótelum hótelturninn á Höfðatorgi. Þá leigir félagið CenterHótelunum hótelbygginguna á horni Laugarvegar og Snorrabrautar.

Marriott hefur þegar haslað sér völl á Íslandi. Hótelkeðjan er með Edition-lúxushótelið við Hörpu í Reykjavík og Courtyard-hótelið á Aðaltorgi, gegnt Keflavíkurflugvelli.

Fulltrúar Marriott spenntir

Alex Steinbach, forstöðumaður hótelþróunar á Norðurlöndum hjá Marriott, segist í tilkynningu spenntur fyrir verkefninu.

Við erum spennt kynna Moxy hótelkeðjuna til Reykjavíkur. Moxy býður upp á skemmtilega og félagslega upplifun sem hentar fullkomlega bæði Íslendingum og erlendum gestum sem leita líflegri og óhefðbundinni gistingu. Þetta verkefni sýnir áframhaldandi vöxt Marriott hótela á Norðurlöndunum og styrk Marriott Bonvoy vildarkerfisins. Við erum afar þakklát fyrir náið samstarf okkar við Cabin ehf. og fasteignafélagið Íþöku ehf. og hlökkum til þessa spennandi ferðalags saman, sagði Steinbach í tilkynningu til blaðsins.

Fjallað er um hótelið í blaðinu í dag.

Nafnalisti

  • Alex Steinbach
  • Gunnar Valur Gíslasonbæjarfulltrúi
  • Harpatónlistar og ráðstefnuhús
  • Hótel Örkfyrsta flokks hótel með glæsilegum herbergjum og frábærri aðstöðu
  • Jóhann Sigurðssonleikari
  • Marriottstærsta hótelkeðja heims með yfir 6500 hótel og 30 vörumerki
  • Marriott Bonvoy

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 253 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,69.