EfnahagsmálViðskipti

Tollastríðið geti leitt til aukins verðþrýsings á Ís­landi

Magnús Jochum Pálsson

2025-03-05 21:41

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir tollastríð hafið og horfur á verðbólga geti orðið nokkru meiri fyrir vikið. Óvíst hvort tollahækkunum verði beitt gegn Íslandi en í öllu falli gæti tollastríðið leitt til óbeins verðþrýstings hér á landi.

Tollahækkanir Bandaríkjaforseta á vörur frá löndum Evrópusambandsins taka gildi 2. apríl næstkomandi. Innflutningstollar á vörur frá Kína, Kanada og Mexíkó hækkuðu upp í 25 prósent í gær. Markaðir um allan heim titruðu og hlutabréfavísitölur í Asíu lækkuðu snarlega.

Áhrifanna gætti einnig hér á landi þar sem gengi bréfa allra félaga á aðalmarkaði Kauphallar lækkuðu í gær og úrvalsvísitalan um tæp fjögur prósent. Bandaríkjaforseti boðar tollar á vörur frá ESB verði hækkaðir í 25 prósent. Ekki liggur fyrir hvort tollar á EES-ríkin eins og Ísland hækki líka.

Vildi ekki láta saka sig um aprílgabb

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í ræðu í þinginu í nótt fjölmörg ríki hefðu lagt mun hærri tolla á Bandaríkin en Bandaríkin á þau. Kerfið væri ekki sanngjarnt gagnvart landinu og því myndi hann ráðast í hækkanirnar þann 2. apríl.

Ég vildi það yrði 1. apríl en vildi ekki láta saka mig um aprílgabb. Það munar bara einum degi en þetta kostaði okkur mikinn pening. En við gerum þetta í apríl, ég er mjög hjátrúarfullur. Þann 2. apríl öðlast gagnkvæmir tollar gildi, sagði Trump meðal annars í ræðu sinni.

Sama hve háa tolla önnur lönd myndu leggja á Bandaríkin þá sagði Trump Bandaríkin myndu svara í sömu mynt með jafnháum tollum.

Markaðir sjái fram á meiri óvissu

Sindri Sindrason fréttaþulur ræddi við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, í kvöldfréttum Stöðvar 2 um tollahækkanir Bandaríkjanna og áhrif þeirra á Ísland. Óvissu vegna aðgerðanna megi sjá á mörkuðum um allan heim.

Erum við horfa fram á tollastríð?

, ég held það megi segja það komið í gang. Eftir þessar aðgerðir Bandaríkjanna hafa Kanada, Mexíkó og Kína svarað í sömu mynt með einum hætti eða öðrum. Verið er beina spjótum Evrópu því er virðist einnig, sagði Jón Bjarki.

Hann segir þó eitthvað verði dregið í land varðandi tolla milli Kanada og Bandaríkjanna þá hafi ráðamenn í Bandaríkjunum tilkynnt ekki verði dregið fullkomlega í land með þá tolla sem voru tilkynntir í vikunni.

Kauphöllin var rauð í gærkvöldi. Hvernig er útlitið svona næstu misserin?

Markaðirnir eru, því er virðist, sammála mér og flestum hagfræðingum um þetta séu ekki góðar fréttir fyrir efnahaginn. Horfur eru á verðbólga, sérstaklega í þeim löndum sem eru þátttakendur í tollastríði, getur orðið nokkru meiri fyrir vikið. Vextir þá hærri og á sama tíma getur orðið á fótinn í efnahagslífinu í þessum löndum, sagði Jón.

Markaðirnir held ég hafi, nokkuð með réttu að minnsta kosti, verið verðleggja meiri óvissu um það hvort verði sami vöxturinn í Bandaríkjunum og nágrannaríkjunum eins og hefur verið undanfarin misseri, sagði hann.

Íslendingar með eitt tromp á hendi

Tollahækkanir á Evrópu. Hvaða áhrif mun það hafa hér á landi?

er mjög erfitt um það segja því mér heyrist enginn hafa fengið botn í það, hvorki íslenskir ráðamenn norskir sem hafa miklar áhyggjur af þessum málum, hvort það líka verið horfa til okkar og Noregs eða hvort þessi hótun einskorðist við Evrópusambandið sjálft, sagði Jón.

Við höfum oft getað siglt milli skers og báru, skákað í því skjólinu hvað við erum lítil og í tilfelli Bandaríkjanna erum við með vöruskiptahalla, flytjum meira inn af vörum frá Bandaríkjunum en við flytjum út til þeirra. Trump virðist sérstaklega vera uppsigað við lönd sem eru flytja meira út til Bandaríkjanna en inn þannig við höfum að minnsta kosti það tromp á hendinni, sagði hann.

Mun vöruverð hækka hérlendis í kjölfar alls þessa?

Það gætu orðið óbein áhrif á endanum. Svo lengi sem við gætum því lenda ekki utan tollamúra annarra stærstu viðskiptablokka, Evrópa er auðvitað okkar stærsta viðskiptasvæði á heildina litið, þá verða áhrifin vonandi hófleg og kannski ekki síður óbein heldur en óbein af tollamúrum sem verða reistir gagnvart okkur, sagði Jón Bjarki og bætti við:

Óvissan er í þá áttina þetta geti orðið eitthvað óheppilegt fyrir verðþrýstinginn.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Jón Bjarki Bentssonaðalhagfræðingur Íslandsbanka
  • Sindri Sindrasonsjónvarpsmaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 732 eindir í 40 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 33 málsgreinar eða 82,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.