Íþróttir

Ein­kunnir Ís­lands: Martraðarinnkoma og fall úr B-deild

Íþróttadeild Vísis

2025-03-23 19:09

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 13 tap er liðið tók á móti Kósovó á óhefðbundnum heimavelli Íslands í umspili Þjóðadeildar UEFA í kvöld.

Leikur kvöldsins, sem var heimaleikur Íslands, fór fram í Murcia á Spáni sökum þess enginn völlur hér heima uppfyllir kröfur UEFA á þessum árstíma.

Íslenska liðið var 21 undir í einvíginu eftir fyrri leikinn og þurfti því á sigri halda til eiga möguleika á því halda sæti sínu í B-deild. Útlitið var gott fyrir íslenska liðið sem komst yfir strax á 2. mínútu eftir mark frá Orra Steini Óskarssyni, en gestirnir frá Kósovó snéru taflinu við og unnu 31 sigur.

Íslenska liðið spilaði síðustu tuttugu mínúturnar manni færri eftir Aron Einar Gunnarsson fékk líta sitt annað gula spjald og heilt yfir var frammistaða Íslands langt undir pari.

Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður [5]

Átti í það minnsta tvær fínar vörslur í kvöld. Þurfti hins vegar sækja boltann í þrígang í netið, en kannski erfitt skrifa mörkin á Hákon.

Valgeir Lunddal Friðriksson, hægri bakvörður [5]

Fór meiddur af velli eftir rétt rúmlega tuttugu mínútna leik. Í raun lítið hægt segja um hans frammistöðu.

Sverrir Ingi Ingason, miðvörður [5]

Átti frábæra tæklingu um miðbik fyrri hálfleiks þar sem hann kom líklega í veg fyrir mark. Þess utan átti einn okkar reynslumesti maður oft og tíðum í erfiðleikum með óreyndari menn sér við hlið í varnarlínunni.

Stefán Teitur Þórðarson, miðvörður [4]

Of passívur í aðdraganda jöfnunarmarks Kósovó og aftur þegar Kósovó komst yfir. Átti í erfiðleikum með leysa stöðu sem hann er ekki vanur spila.

Ísak Bergmann Jóhannesson, vinstri bakvörður [4]

Einn af mörgum sem spiluðu annars staðar en í sinni náttúrulegu stöðu í kvöld. Ísak hefur átt góðu gengi fagna undanfarið með félagsliði sínu, en var ekki upp á sitt besta í bakverðinum og var tekinn af velli í hálfleik.

Willum Þór Willumsson, hægri kantmaður [5]

Fékk hörkufæri til jafna metin fyrir Ísland snemma í síðari hálfleik en fór illa ráði sínu.

Arnór Ingvi Traustason, miðjumaður [6]

Tekinn af velli í hálfleik. Hefur oft verið líflegri, en gerði mistök þegar hann komst í boltann.

Þórir Jóhann Helgason, miðjumaður [6]

Átti hörkuskot á 53. mínútu sem þvingaði út góða vörslu. Engin flugeldasýning frá Þóri, en heldur ekkert yfir kvarta.

Jón Dagur Þorsteinsson, vinstri kantmaður [6]

Hefur oft verið sýnilegri í leikjum íslenska liðsins. Er oftast mesti baráttuhundur liðsins, en fékk lítið sýna þá hlið á sér í kvöld.

Albert Guðmundsson, framherji [6]

Lagði upp markið fyrir Orra í upphafi leiks. Hnitmiðuð hornspyrna sem fann vinstri fótinn á fyrirliðanum. Annars var Albert ekki upp á sitt besta. Föst leikatriði sem hann hefur oft skapað hættu með voru ekki finna rétt svæði og ólíkt því sem við erum vön sjá þá átti hann það of oft til missa boltann langt frá sér.

Orri Steinn Óskarsson, framherji, fyrirliði [7]

Kom Íslandi í forystu strax á annarri mínútu eftir hornspyrnu frá Alberti. Snyrtileg afgreiðsla og nýkrýndur fyrirliði heldur áfram mjatla inn mörkum fyrir íslenska landsliðið. Fékk annars úr litlu moða.

Varamenn:

Bjarki Steinn Bjarkason, kom inn á fyrir Valgeir Lunddal Friðriksson á 21. mínútu [5]

Líkt og Stefán Teitur hefði Bjarki líklega átt mæta boltamanninum betur í aðdraganda jöfnunarmarks Kósovó.

Logi Tómasson kom inn á fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson á 46. mínútu [6]

Átti ágætis innkomu fyrir Ísak Bergmann sem átti í brasi í bakverðinum.

Aron Einar Gunnarsson kom inn á fyrir Arnór Ingva Traustason á 46. mínútu [1]

Það er óhætt segja þetta hafi ekki verið draumainnkoma hjá Aroni. Nældi sér í gult spjald eftir rúmlega tveggja mínútna veru á vellinum, rann nokkrum sinnum til á grasinu og skipti um skó, en rann aftur til. Kórónaði svo innkomuna með því næla sér í annað gult, og þar með rautt, á 69. mínútu.

Kristian Hlynsson kom inn á fyrir Willum Þór Willumsson á 65. mínútu [5]

Kom inn á í erfiðri stöðu, sem bara versnaði þegar Aron Einar lét reka sig af velli stuttu síðar. Fór lítið fyrir honum inni á miðsvæðinu.

Andri Lucas Guðjohnsen kom inn á fyrir Orra Stein Óskarsson á 65. mínútu [4]

Reyndi láta finna fyrir sér og tókst það þegar hann nældi sér í gult spjald stuttu eftir hann kom inn á. Fékk þó úr litlu moða í fremstu víglínu.

Nafnalisti

  • Albert Guðmundssonleikmaður AZ Alkmaar og íslenska landsliðsins
  • Andri Lucas GuðjohnsenÍslendingur
  • Arnór Ingvi Traustasonlandsliðsmaður
  • Aron Einar GunnarssonFyrirliði
  • B-deild1. sæti
  • Bjarki Steinn Bjarkasonleikmaður Venezia í ítölsku úrvalsdeildinni, Serie A
  • Hákon Rafn Valdimarssonlandsliðsmarkvörður
  • Ísak Bergmann Jóhannessoníslenskur landsliðsmaður
  • Jón Dagur Þorsteinssonlandsliðsmaður
  • Kristian Hlynssonfjórði Íslendingurinn sem kemst á The Guardian Next Generation-listann yfir bestu ungmenni fótboltans
  • Logi Tómassonleikmaður Víkings
  • Orri Steinn Óskarssonframherji
  • Stefán Teitur ÞórðarsonSkagamaður
  • Sverrir Ingi Ingasonlandsliðsmaður
  • Valgeir Lunddal Friðrikssonbakvörður
  • Willum Þór Willumssonmiðjumaður
  • Þórir Jóhann Helgasonlandsliðsmaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 779 eindir í 55 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 51 málsgrein eða 92,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,68.