„Kokkurinn“ í Bandidos látinn

Jón Þór Stefánsson

2025-04-03 09:03

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Michael Rosenvold, forseti mótorhjólagengisins Bandidos í Evrópu, er látinn 57 ára aldri. Rosenvold var danskur, og gekk undir nafninu kokkurinn.

Ekstra bladet greinir frá andláti kokksins en það kom í ljós þegar réttarhöld á hendur mótorhjólagenginu, sem snúast um þau bönnuð í Danmörku, áttu halda áfram í morgun. Saksóknari greindi dómnum frá andlátinu.

Saksóknararnir vilja meina Bandidos séu hættuleg og ofbeldisfull samtök, sem eigi því verða leyst upp. Meðlimir Bandidos aftur á móti halda því fram um félagsskap ræða sem hafi áhuga á mótorhjólum.

Frá því í desember síðastliðnum hefur verið lagt tímabundið bann á starfsemi samtakanna í Danmörku. Tíu meðlimir gengisins eru í haldi þessa stundina grunaðir um funda þrátt fyrir þetta bann.

Rosenvold, sem er forsvarsmaður Bandidos í Danmörku, var ekki einn þessara tíu, en fyrirhugað var hann myndi gefa skýrslu fyrir dómnum í dag. Dómarinn frestaði þinghaldinu vegna fregnanna.

Samkvæmt DR tileinkaði Rosenvold stórum hluta lífs síns til Bandidos. Hann kom stofnun gengisins í Danmörku á tíunda áratugnum. Áður hafði hann verið meðlimur annars mótorhjólagengis, sem hét Undertakers, en árið 1993 sameinaðist hópur Bandidos.

Fyrst var ég ritari klúbbsins hérna í Danmörku, svo varaforseti og svo forsetinn yfir allri Evrópu, sagði Rosenvold við réttarhöldin í febrúar síðastliðnum.

Nafnalisti

  • Bandidosskipulagt glæpasamtökunum
  • Michael Rosenvold

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 239 eindir í 14 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.