Stjórnmál

Ráðu­neytið svari ekki ítrekuðum beiðnum um gögn

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-04-03 09:17

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) munu ekki veita umsögn í dag, innan tilskilins frests, um frumvarp atvinnuvegaráðherra um stórfellda hækkun á veiðigjaldi. Þau segja óforsvaranlegt veita aðeins vikufrest til umsagnar um svo veigamikið og afdrifaríkt mál, sem hafi ófyrirséð áhrif langt út fyrir raðir sjávarútvegs.

Í tilkynningu á vef SFS kemur fram samtökin hafi óskað eftir framlengingu á fresti til og með 11. apríl en fengið synjun frá atvinnuvegaráðuneyti. SFS stefna því birta og láta ráðuneytinu í umsögn viku liðinni, jafnvel fyrr.

Í öðru lagi torveldar það hagaðilum verkið, ráðuneytið hefur kosið svara ekki ítrekaðri beiðni samtakanna um aðgang undirliggjandi grunngögnum og útreikningum sem frumvarpið byggist á.

SFS hafa þegar orðið áskynja um villur í tölum ráðuneytisins, en samtökunum er gert ómögulegt er leita uppruna hlutaðeigandi villna og leiðrétta þær þegar gögn eða útreikningar ráðuneytisins eru ekki fyrir hendi. Af athafnaleysi ráðuneytisins verður ekki annað ráðið en það kjósi hafna faglegri úrvinnslu talna, gagnsæi og upplýstri umræðu.

Samtökin segja jafnframt ráðuneytið hafi í engu reynt leggja mat á möguleg áhrif frumvarpsins, verði það lögum. Hagaðilar séu því tilneyddir til vinna þá nauðsynlegu vinnu fyrir stjórnvöld.

Þá eru tillögur frumvarpsins, sem sækja stuðning í norskan veruleika, þess eðlis skilja þarf fiskveiðistjórnunarkerfi Norðmanna til hlítar, virkni uppboðsmarkaða, tilhögun veiða í einstökum stofnum og verðmyndun innan virðiskeðju sjávarútvegs þar í landi. Það verkefni verður ekki hrist fram úr erminni á einni viku.

SFS benda á fyrirætlanir um tengingu við afurðir í öðru landi sem skattandlag hafi aldrei komið fram áður. Hér er því um ræða umbyltingu á andlagi skattheimtu með veiðigjaldi.

Allt vel þenkjandi og sanngjarnt fólk hlýtur skilja slík grundvallarbreyting þarfnast yfirlegu og ítarlegrar skoðunar.

lokum segja samtökin í kynntu fyrirkomulagi felist skattskylda mun hvíla á sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi vegna verðmæta sem þau hafa engan ráðstöfunarrétt yfir, það er afurðum á markaði í Noregi.

Slíkt stenst mati SFS ekki viðtekin viðhorf við álagningu skatta með hliðsjón af þeim kröfum sem leiða af ákvæðum stjórnarskrár. Fyrirliggjandi frumvarp skortir alla efnislega umfjöllun og greiningu á þessu álitaefni. Það kemur því, eins og á við um flest annað, í hlut SFS greiða úr því fyrir ráðuneytið. Það krefst tíma.

Nafnalisti

  • SFSáður LÍÚ

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 423 eindir í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.