Handtekinn fyrir að skora á Trump að slást við sig nakinn til dauða

Pressan

2025-03-19 15:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Maður í Flórída í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn fyrir hótanir í garð Donald Trump forseta Bandaríkjanna en meðal þeirra var skora á forsetann í slag þar sem þeir yrðu báðir naktir og slegist yrði þar til annar þeirra lægi látinn eftir.

Samkvæmt umfjöllun New York Post heitir maðurinn Aaron Todd og er 42 ára gamall en hann var handtekinn eftir hafa birt hótanir sínar á samfélagsmiðlum.

Birti hann 80 sekúnda myndband með hótunum sínum en í myndbandinu sagði hann einnig vegna Trump hvíldi bölvun á hverri manneskju í heiminum og forsetinn væri andkristur sjálfur.

Lífvarðasveit forsetans varð fljólteg vör við myndbandið og löggæsluyfirvöldum á svæðinu var gert viðvart. Fógetinn í sýslunni þar sem Todd býr sagði myndbandið strax hafa vakið áhyggjur í ljósi fyrri banatilræða við Trump og því hafi ekki þótt annað hægt en bregðast við af fullri hörku.

Lögð hefur verið fram ákæra á hendur Todd en hann verður látinn laus úr fangelsi á meðan málið er til meðferðar gegn því 500.000 dollara trygging (66,7 milljónir íslenskra króna) verði lögð fram.

Nafnalisti

  • Aaron Todd
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • New York Postgötublað

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 178 eindir í 6 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 4 málsgreinar eða 66,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.