Viðskipti

Þorgerður um nýjustu vendingar: „Honum var alvara“

Ritstjórn mbl.is

2025-04-02 22:38

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Utanríkisráðherra segir mikil vonbrigði sjá Bandaríkin setja 10% toll á allar innfluttar vörur frá Íslandi. Þó Ísland sleppi betur en flestar vinaþjóðir okkar þá þurfi líta á heildarmyndina. Mikið er í húfi fyrir íslenskt atvinnulíf.

Þetta kemur fram í samtali Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra við mbl.is.

Þorgerður vill undirstrika ísland og Bandaríkin hafi ávallt átt í góðum samskiptum við Bandaríkin og séu góðir bandamenn.

Það eru mikil vonbrigði sjá þessa góðu bandamenn okkar hækka tolla á innflutning á okkar fyrirtæki á Bandaríkjamarkaði, sérstaklega þegar við höfum það í huga markaðurinn hér heima er galopinn fyrir bandarískan innflutning. Vöruskiptin á milli landanna eru í jafnvægi en um leið og ég segi þetta þá vil ég undirstrika við viljum gefa okkur tíma, fara yfir þetta og greina stöðuna, segir Þorgerður.

Trump tilkynnti fyrr í kvöld 10% lágmarkstoll á allar innfluttar vörur til Bandaríkjanna. Þar að auki lentu fleiri tugi þjóða í því gagntolla frá Bandaríkjunum sem eru margfalt hærri. Ísland lenti ekki í því.

Starfandi sendiherra boðaður á fund

Hún segir stjórnvöld munu boða atvinnulífið til samráðsfundar í fyrramálið og síðan verði einnig starfandi sendiherra Bandaríkjanna boðaður á fund á morgun til ræða stöðuna.

Auðvitað er hægt segja miðað við aðrar þjóðirNorðmenn eru 15% toll, ESB 20%, Sviss 31%, Liechtenstein 37% við séum sleppa vel. En í stóru myndinni, við sem erum fyrir frjálsa og opna markaði, hagkerfið virki fyrir stór sem lítil lönd þá eru þetta ákveðin vonbrigði sjá Bandaríkin feta þessa leið. En eins og ég segi þá ætlum við fara vel yfir þetta, segir Þorgerður.

Hún segir henni líði ekkert betur með við séum lægri tolla á meðan aðrar þjóðir eru í skítnum.

Heildarmyndin skipti máli

Þorgerður Katrín segir heildarmyndin skipti máli og farsæld vestrænna lýðræðisríkja byggist að miklu leyti á alþjóðlegum viðskiptum, opnum mörkuðum og fyrirsjáanleika. Það hafi skilað sér í velsæld fyrir fjölskyldur.

Þetta er úrlausnarefni fyrir okkur það er byrjað beita tollum aftur. Honum var alvara og hann er fylgja þeim eftir, segir hún en vill ekkert segja til um það hvort tollarnir hafi verið lægri eða hærri en hún hafi búist við.

Hún segir miklu máli skipta samskipti þjóðanna verði áfram góð enda séu þjóðirnar tengdar í varnar-, menningar- og efnahagsmálum.

Mikið í húfi fyrir íslenskt atvinnulíf

Evrópusambandið hefur sagt það tilbúið ráðast í hefndartolla gegn Bandaríkjunum, þó sambandið vilji helst komast niðurstöðu í gegnum samninga.

Við erum ekki hluti af Evrópusambandinu en kemur til greina taka þátt í slíkum aðgerðum, mögulegum gagntollum?

Ég ætla gefa mér það skoða og rýna þetta. Það sem við Íslendingar þurfum, eins og Norðmenn hafa sjálfir líka talað um, er passa við lendum ekki í þreföldum aðgerðum. Tollar frá Bandaríkjunum og tollar frá Evrópusambandinu. Það höfum við verið gera á síðustu vikum, ég og forsætisráðherra, segir Þorgerður.

Hvort við ætlum fara í einhverjar aðgerðir, ég ætla bara leyfa mér greina þetta og við þurfum gera þetta af yfirvegun. Því það er mjög mikið í húfi fyrir íslenskt atvinnulíf, heimili og líka stóru myndina í heiminum, segir Þorgerður.

Nafnalisti

  • Trumpkjörinn forseti Bandaríkjanna
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 594 eindir í 31 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 29 málsgreinar eða 93,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.