Hvers vegna má ekki banna síma?

Sif Sigmarsdóttir

2025-03-22 09:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ég las nýverið frétt um allir speglar hefðu verið fjarlægðir af veggjum snyrtinga í skóla skammt frá Lincoln á Englandi. Sagði skólastjórinn nemendur verja allt of miklum tíma fyrir framan speglana.

Eftir viðburðalítinn dag bjó ég yfir mörgum kílóvattstundum af ónýttum hneykslunarkrafti sem þeytti mér beint á endastöð hverrar rökleiðslu: F-orðið. Þetta var augljóslega fasismi.

Foreldrar í skólanum, sem Breska ríkisútvarpið tók tali, voru sama sinnis. Hvað ef börnin eru með eitthvað fast í tönnunum? spurði ein móðir.

Þegar ég greindi ellefu ára dóttur minni, sem sækir grunnskóla í London, frá málinu átti ég von á liðsauka í vandlætingu minni. Raunin varð önnur.

Það eru engir speglar í skólanum mínum, svaraði hún.

Ó. Á sjö ára skólagöngu hennar hafði það farið fram hjá mér. En finnst þér það ekki ósanngjarnt?

Hún yppti öxlum. Nei.

Ég mun ekki hlýða

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, fyrrverandi barna- og menntamálaráðherra, vann fyrir afsögn sína í vikunni frumvarpi sem banna átti snjallsíma í grunnskólum landsins.

Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, brást við ráðagerðinni af heift. Í eldræðu á samfélagsmiðlinum Facebook kvaðst hann ekki mundu framfylgja slíku banni. Ég mun ekki hlýða.

Símar eru bannaðir í skóla dóttur minnar. Almenn ánægja ríkir um fyrirkomulagið. Ofsafengin viðbrögð Ragnars Þórs komu mér því spánskt fyrir sjónir.

Hvers vegna mátti ekki banna síma? Rök Ragnars voru óljós. Eitthvað um menntamálaráðherra stigi yfir strik. Eitthvað um fylki í Bandaríkjunum sem hafa gefið skóla á vald forneskju. Eitthvað um fasista í stjórn menntamála í öðrum löndum, m.a. Danmörku þar sem banna á síma í skólum. Eitthvað um menn sem hafa ruðst inn í skóla í leit sönnunargögnum um kynfræðslu á Íslandi. Eitthvað um smætta kennara niður í það þeir ráði ekki við hlutverk sitt.

Þótt ég skildi ekki rökin tengdi ég við síðasta liðinn. Það er nefnilega orðin þjóðaríþrótt hér á landi smætta foreldra og saka þá um farast hlutverk sitt illa úr hendi.

Í ummælum við eldræðu Ragnars kepptust menn við úthúða foreldrum. Ákall um símabann kemur oftar en ekki frá foreldrum, sagði einn. Hvert foreldri sem ekki vill barnið sitt noti síma ætti bara hysja upp um sig buxurnar og láta barnið ekki hafa síma. Og ef ekkert foreldranna vill stíga fyrsta skrefið og vera leiðinlega foreldrið þá geta þau hæglega haft samband við aðra foreldra og gengið samtaka fram í þessu máli.

Nálgun þessa úrræðagóða herramanns kann virðast rökrétt. En ég veit hvernig slík sviðsmynd lítur út í veruleikanum.

Þegar dóttir mín hóf skólagöngu sammæltist hópur foreldra um gefa börnum sínum ekki snjallsíma í grunnskóla. Ásetningurinn fór þó fljótt fyrir lítið. Dóttir mín er eina í vinkvennahópi sínum sem ekki er komin með síma. Símabannið í skóla hennar tryggir hins vegar hún verður þess lítið vör.

Nýverið fór dóttir mín hins vegar á leiklistarnámskeið. Hún hafði sótt sambærileg námskeið áður og alltaf kynnst þar urmul af krökkum. Að þessu sinni voru símar hins vegar leyfðir. Í fyrsta sinn náði dóttir mín ekki nokkru sambandi við hina nemendurna sem áttu í samskiptum í frímínútum á WhatsApp með YouTube vídeóum.

Ekki allt er mannréttindi

Það eru speglar heima hjá okkur, af hverju mega ekki vera speglar í skólanum? spurði reið móðir skólastjórann í Lincoln.

Við fyrstu sýn fannst mér speglamálið bera vott um hugsunarlausa valdníðslu. En aðgerðin átti sér skýringu. Stórir hópar nemenda, sem héngu við salernisspeglana, voru farnir valda þeim óþægindum og kvíða sem þurftu nota klósettaðstöðuna til hefðbundinna verka.

Ég á erfitt með skilja þá sem telja það mannréttindi börn fái vera með símann nánast samgróinn við lófann á sér. Ég er þó alveg til í hlusta á rök þeirra.

En ekki allt er mannréttindi og ekki allt er fasismi.

Þótt símareins og speglarséu heima hjá okkur er það ekki sjálfgefið þeir eigi heima í skólum. Á hinn bóginn getur verið til séu fyrir því góð rök krakkar komi með síma í skólann. Eitt er þó víst. öfgafulla heift sem einkennir umræðuna er ekki til þess fallin leiða málið farsællega til lykta.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Lincolnbílaframleiðandi
  • Ragnar Þór Péturssonfyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands
  • Símabanniðekki nýtt fyrirbæri hjá stjörnunni
  • WhatsAppsamskiptaforrit

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 770 eindir í 56 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 49 málsgreinar eða 87,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,54.