Miklar umræður sköpuðust um veðmál á stjórnarfundi í Laugardalnum

433

2025-04-01 12:45

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Það var rætt um veðmál leikmanna á Íslandi og vandamál sem þeim fylgja á síðasta stjórnarfundi KSÍ, en fundargerð fyrir þann fund var gefin út í dag.

Þetta hefur mikið verið í umræðunni undanfarin ár, síðast var fyrirliði Vestra, Elmar Atli Garðarsson, dæmdur í tveggja mánaða bann fyrir veðja á leiki.

Í fundargerð kemur fram á fundinum hafi miklar umræður skapast um málið í kjölfar þess Heimir Fannar Gunnlaugsson, nýr formðaur ÍTF, flutti erindi um það.

Heimir Fannar ræddi um veðmál og ábyrgð félaga og leikmanna, um hvernig væri hægt fræða leikmenn og aðra fulltrúa félaganna um gryfjurnar í veðmálum, og félögin sjálf og leikmenn og/eða aðrir fulltrúar félaganna taki ábyrgð.

ÍTF og KSÍ eru bæði með verkefni í vinnslu og undirbúningi sem snúa fræðslu um veðmál og veðmálafíkn. Margir stjórnarmenn tóku til máls, lýstu yfir áhyggjum sínum af þessum málum almennt, og fögnuðu því jafnframt ýmis verkefni væru í bígerð, segir um málið í fundargerðinni.

Nafnalisti

  • Elmar Atli Garðarssonknattspyrnudeild Vestra
  • Heimir Fannar Gunnlaugssonframkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi
  • ÍTFÍslenskur toppfótbolti

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 180 eindir í 6 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 6 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.