Skref tekið með hliðsjón af skuggaflota Rússa

Ritstjórn mbl.is

2025-03-11 19:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ómannaður eftirlitskafbátur sem stendur til taka í notkun myndi hjálpa við vernda sæstrengi Íslands en óþekkt rússnesk skip hafa sést í lögsögu Íslands.

Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í samtali við mbl.is.

Þorgerður kynnti ríkisstjórninni í dag tillögu mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands og er stefnt því leggja fram drög stefnunni fyrir lok vorþings.

Meðal annars greindi Þorgerður frá áætlun um taka ómannaðan eftirlitskafbát í notkun.

Eftirlit með sæstrengjum og höfnum

Þetta er til þess byggja undir örugg samskipti og fjarskipti, bæði borgaraleg og við erlent herlið. Þá þurfum við geta vaktað meðal annars neðansjávarjarðstrengina og hafa eftirlit með helstu lykilhöfnum landsins, segir Þorgerður í samtali við mbl.is.

Háskóli Íslands lét á sínum tíma Landhelgisgæsluna þennan kafbát, sem er framleiddur á Íslandi, en Þorgerður segir það þurfi uppfæra hann og styrkja búnaðinn til þess efla getu hans.

Rússnesk skip siglt við Íslandsstrendur

Spurð hvort þetta skref tengist fréttum af skuggaflota Rússlands sem valdið hefur skemmdum á sæstrengjum Eystrasaltsríkja segir Þorgerður:

, við horfum auðvitað til þess og við erum vinna okkar forvarnarvinnu. Við sjáum það líka það hafa skip af erlendum uppruna, lesist rússnesk, verið sigla á ákveðnum svæðum, bæði hér og annars staðar sem tengjast neðansjávarinnviðum. Við þurfum bara tryggja eins örugg fjarskipti og samskipti og hægt er.

Þorgerður nefnir í samhengi við þessar varnir CERT-IS fara frá Fjarskiptastofnun yfir í utanríkisráðuneytið til efla frekar netöryggissveitir stjórnvalda.

Nafnalisti

  • CERT-ISnetöryggissveit
  • Háskóli Íslandsstærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 266 eindir í 14 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 85,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.