VeiðiViðskipti

Bandaríkin helstu kaupendur íslensks lax

Ritstjórn mbl.is

2025-03-06 18:46

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Seldar voru til Bandaríkjanna eldisafurðir fyrir 2,3 milljarða króna í janúar síðastliðnum og hefur útflutningsverðmæti ílenskra eldisafurða til Bandaríkjanna aldrei verið meira í einum mánuði. Bandaríkin voru jafnframt helsti markaður íslenskra eldisafurða í janúarmánuði.

Þetta kemur fram í greiningu Radarsins, en þar er fjallað um nýjustu útflutningstölur Hagstofu Íslands.

Þar segir 95% þeirra eldisafurða sem seldar voru til Bandaríkjanna hafi verið lax.

Eins og nefnt hefur verið voru Bandaríkin helsti markaður fyrir íslenskar eldisafurðir í janúar, en næst mest af eldisafurðum var selt til Hollands eða fyrir um 1,6 milljarða króna. Á eftir fylgir Danmörk með 900 milljónir króna.

Athygli vekur útflutningur til Þýskalands vex stórum og slagar hann í hálfan milljarð. Annars staðar dregst hann nokkuð saman og nefna Danmörku, Frakkland og Pólland en Holland stendur nokkurn veginn í stað. Þetta lesa úr tölum Hagstofunnar sem nýlega voru birtar, segir í greiningu Radarsins.

Óvissa um áhrif tolla

Eins og flestum er kunnugt hefur Donald Trump forseti Bandaríkjanna lýst yfir tollum á vörur frá Kanada, Mexíkó og Kína, en í Kanada er framleitt töluvert af eldislaxi. Hafa þar einnig verið viðraðar hugmyndir um innflutningstolla á vörur frá ríkjum Evrópusambandsins.

Philip Scrase, yfirmaður greiningadeildar fiskeldis hjá Kontali, hefur sagt tolla á kanadískan eldislax leiða af sér samkeppnisforskot annarra framleiðenda eldislax á bandarískum markaði til skamms tíma, en harðnandi samkeppnisskilyrði á öðrum mörkuðum.

Sem stendur er ómögulegt geta sér til um hvort áformin muni hafa áhrif á útflutning frá Íslandi. Ef litið er nokkur ár aftur í tímann, til ársins 2019, kemur í ljós hlutfall eldisafurða af heildarútflutningsverðmæti sjávarafurða í janúar og febrúar hefur aukist umtalsvert, úr 10% í 26%. Bara frá árinu 2022 hefur það rúmlega tvöfaldast, segir í greiningu Radarsins.

Á fyrstu tveimur mánuðum ársins nam útflutningsverðmæti eldisafurða 14,6 milljörðum króna sem er rúmlega 11% aukning frá sömu mánuðum á síðasta ári og ríflega 55% aukning frá janúar og febrúar 2023.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Hagstofu Íslandsárið 2015
  • Kontaligreiningarfyrirtæki
  • Philip Scrase

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 333 eindir í 17 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 94,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.