RÚV gefur út leiðréttingu vegna umfjöllunar Spegilsins um mál Ásthildar Lóu - „Fréttastofa RÚV harmar þessi mistök“

Ritstjórn DV

2025-03-28 19:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fréttastofa RÚV hefur gefið út leiðréttingu vegna umfjöllunar Spegilsins um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, en þátturinn fór í loftið skömmu eftir fyrsta frétt birtist um málið.

Í inngangi umfjöllun Spegilsins þar sem rætt var við álitsgjafa um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur fimmtudaginn 20. mars klukkan 18:10 kom fram staðhæfing Ásthildur Lóa hefði átt barn með fimmtán ára pilti, þá 22 ára. Það er rangt.

Hið rétta er pilturinn var sextán ára og Ásthildur Lóa tuttugu og þriggja ára þegar þau eignuðust barnið eins og kom fram í fréttum RÚV af málinu. Fréttastofa RÚV harmar þessi mistök og biður alla hlutaðeigandi velvirðingar.

Hvað var sagt í Speglinum?

Í inngangi Spegilsins sagði: Eins og fram kom í fréttum þá eignaðist Ásta Lóa Þórsdóttir, barnamálaráðherra, þá 22 ára gömul, barn með 15 ára pilti sem hún kynntist í unglingastarfi sem hún leiddi. Þetta var fyrir 35 árum, 1990, og það kannski segja þetta á gráu svæði. Hún var aðeins 22 ára, pilturinn orðinn 15 ára, kynferðislegur lögaldur var 14 ár á þessum tíma en svo er það 198. gr. í kynferðisbrotakafla hegningarlaganna þar sem meðal annars er kveðið á um hver sem misnoti freklega þá aðstöðu viðkomandi skjólstæðingur hans eða hennar í trúnaðarsambandi skuli sæta refsingu og þyngri ef skjólstæðingurinn er undir sjálfræðisaldri. En eins og fram kom í fréttum þá leiddi Ásthildur unglingastarfið í trúarsöfnuðinum sem piltur þessi leitaði til. Þetta með misnotkun og trúnaðarsamband er sem sagt ekki klippt og skorið og hvorki pilturinn forráðamenn hans kærðu, þetta var allt uppi á borðum á sínum tíma, þótt því hafi kannski ekki verið flaggað sérstaklega og svo virðist sem pilturinn hafi ekki talið á sér brotið hvað þetta snertir og þar að auki væri þetta löngu fyrnt ef svo hefði verið. Og þá kunna einhverjir spyrja hvers vegna draga þetta upp núna, 35 árum síðan?

Svo voru kynnt til leiks stjórnmálafræðingarnir Eva Heiða Önnudóttir og Eiríkur Bergmann Einarsson.

Fleiri fullyrðingar á gráu svæði

RÚV hefur beðist afsökunar á hafa farið rangt með aldur málsaðila þegar barnið kom í heiminn. Miðillinn biðst þó ekki afsökunar á þeim vangaveltum sem fylgdu um mögulegt refsinæmi verknaðarins.

DV hefur áður rakið í upprunalegri umfjöllun RÚV mátti finna vísun til 198. gr. almennra hegningarlaga. Þetta ákvæði var ekki til árin 19891990 í þeirri mynd sem það er í dag. Á þeim árum var ákvæðið einkum miðað þeirri stöðu þegar einstaklingur þvingar aðra manneskju til kynmaka með atvinnulegri eða fjárhagslegri kúgun. Orðalag sem vitnað var til í fyrstu frétt RÚV og síðar sama dag í Speglinum, um trúnaðarsamband, kom ekki inn í lagaákvæðið fyrr en með lagabreytingu árið 1992. Eins var í fyrstu frétt RÚV vísað í orðalag 201. gr. almennra hegningarlaga sem eins hefur farið í gegnum miklar breytingar síðustu 35 árin. Árið 1989 var það kynbundið og gerði aðeins ráð fyrir stúlkubarni sem þolanda og karlmanni, sem jafnframt þurfti vera kjörfaðir eða fósturfaðir stúlkunnar, sem geranda. Ekki var finna nokkra vísun í ákvæðinu á þessum tíma til gerenda sem hefði verið trúað fyrir kennslu eða uppeldi þolanda.

Spegillinn tekur eins sérstaklega fram refsing samkvæmt þessum ákvæðum þyngri í tilfelli þar sem þolendur eru ósjálfráða, en barnsfaðir Ásthildar var þó sjálfráða þegar barnið var getið. Umfjöllun Spegilsins gefur enn fremur til kynna um refsivert brot hafi verið ræða gegn ólögráða barni með því taka fram hvorki pilturinn forráðamenn hafi kært og brotið væri í dag löngu fyrnt. Hið rétta er það er ekki um brot ræða skv. þeim lögum sem voru gildandi þá.

Nafnalisti

  • Ásta Lóa Þórsdóttirþingmaður Flokks fólksins
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Eiríkur Bergmann Einarssonprófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst
  • Eva Heiða Önnudóttirprófessor í stjórnmálafræði

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 629 eindir í 26 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 88,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.