Sækja 540 milljarða til að gera upp skuldir ÍL-sjóðs
Árni Sæberg
2025-03-10 09:13
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Viðræðunefnd fjármála- og efnahagsráðherra og ráðgjafar lífeyrissjóða hafa saman mótað tillögur um uppgjör HFF-bréfa sem greiða mun fyrir slitum ÍL-sjóðs, áður Íbúðalánasjóðs. Hljóti tillögurnar samþykki kröfuhafa og Alþingis mun ríkið slá lán upp á 540 milljarða króna til þess að gera upp skuldir.
Í fréttatilkynningu ÍL-sjóðs og fjármála- og efnahagsráðuneytis segir að verkefnisstjórn ÍL-sjóðs hafi lagt til við fjármálaráðherra að unnið verði að framgangi tillögunnar.
Í tengslum við uppgjörið gefi ríkissjóður út ný ríkisskuldabréf að fjárhæð 540 milljarða króna, þar sem meðal annars sé gerð upp eldri skuld ríkissjóðs við ÍL-sjóð að fjárhæð 238 milljarða króna, auk þess sem ábyrgð ríkissjóðs á skuldbindingum ÍL-sjóðs sé gerð upp.
Heildarvirðið slagar í sjö hundruð milljarða
Í tilkynningu segir að virði HFF-bréfanna í uppgjörinu sé metið á 651 milljarða króna. Í uppgjörstillögunum felist að ÍL-sjóður og íslenska ríkið afhendi kröfuhöfum áðurnefnd ríkisskuldabréf að andvirði 540 milljarða króna, önnur verðbréf í eigu ÍL-sjóðs að andvirði 38 milljarða króna, gjaldeyri og reiðufé að andvirði 73 milljarða króna.
Ríkissjóður muni taka við hluta af vaxtaberandi eignum ÍL-sjóðs, samtals að fjárhæð um 222 milljarða króna en þar sé um að ræða húsnæðislánasafn ÍL-sjóðs auk annarra verðbréfa.
Þrír af hverjum fjórum þurfa að samþykkja
Tillaga viðræðuhópsins verði lögð fyrir fund kröfuhafa, en samþykki 75 prósenta atkvæða eftir kröfufjárhæð þurfi til að tillagan að uppgjöri teljist bindandi fyrir alla kröfuhafa. Verði tillagan samþykkt muni fjármálaráðherra sækja heimild Alþingis til að ljúka uppgjöri í samræmi við tillöguna. Þá verði öðrum kröfuhöfum ÍL-sjóðs boðið uppgjör krafna sinna. Við uppgjör krafna og slit ÍL-sjóðs verði gætt að gagnsæi og jafnræði meðal kröfuhafa.
Áætlað sé að aðgerðin skili jákvæðu greiðsluflæði til ríkissjóðs á næstu árum og að skuldahlutföll A-hluta ríkissjóðs muni að loknum öllum ráðstöfunum vegna uppgjörsins batna um að minnsta kosti fimm prósent af vergri landsframleiðslu. Ríkisábyrgðir muni jafnframt lækka um 88 prósent miðað við stöðu í árslok 2024. Verðbréf, sem ríkissjóður hafi gefið út eða ábyrgst, muni við uppgjör HFF bréfanna lækka um 111 milljarða króna að markaðsvirði.
Með þessu uppgjöri sé gert upp að fullu við eigendur bréfanna, sem í flestum tilfellum séu lífeyrissjóðir landsins, og bundinn endir á óvissu tengdri uppgjöri á ríkisábyrgð á skuldum ÍL-sjóðs, með hagfelldum hætti fyrir alla hagsmunaaðila.
Ánægjulegt að aðilar hafi náð saman
„Það er virkilega ánægjulegt að aðilar hafa náð saman um tillögu að samkomulagi í málefnum ÍL-sjóðs. Hljóti tillagan samþykki kröfuhafa og Alþingis næst að ljúka erfiðu máli með hagsmuni allra aðila að leiðarljósi. Tillagan byggir á viðræðum sem hafa átt sér stað í rúmlega eitt ár þar sem unnið hefur verið af kostgæfni að ljúka málinu með farsælum hætti. Full ástæða er til að undirstrika mikilvægi þess að viðræðunefndirnar náðu saman í þessu snúna máli. Kröfuhafar ÍL-sjóðs, sem eru í langflestum tilfellum lífeyrissjóðir, fá gert upp að fullu og óvissu um málefni sjóðsins er eytt. Þá nær ríkissjóður að stöðva skuldasöfnun ÍL-sjóðs sem er stórt hagsmunamál fyrir allan almenning,“ er haft eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra.
Nafnalisti
- A-hlutaEBITDA
- Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
- ÍL-sjóðurútgefandi
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 491 eind í 24 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 95,8%.
- Margræðnistuðull var 1,73.