Blaðamönnum heimilt að brjótast inn á heimili fólks?

Ritstjórn mbl.is

2025-03-07 13:35

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hvar liggja mörk friðhelgi einkalífsins og hvar tekur réttur almennings til upplýsingagjafar við? Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls Steingrímssonar ræðir það í nýjasta þætti Spursmála. Og margt fleira er þar á dagskrá.

Fréttir vikunnar

Rósa Guðbjartsdóttir, alþingismaður og fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði ræðir fréttir vikunnar ásamt Birni Brynjúlfi Björnssyni, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Rósa hafði aðkomu gerð kjarasamninga við kennara og í þættinum verður hún spurð út í meinta aðkomu Ásthildar Lóu Þórhallsdóttur, menntamálaráðherra gerð samninganna og eins framgöngu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, formanns Samtaka íslenskra sveitarfélaga.

Uppákoma hjá sveitarfélögunum

síðastnefnda einangraði sig frá allri stjórn samtakanna þegar hún sagðist reiðubúin fyrir hönd Reykjavíkur ganga til samninga við kennara, jafnvel þótt öll önnur sveitarfélög landsins væru ekki til í bjóða upp í þann dans.

RÚV er vandinn á þröngum markaði

Björn Brynjólfur kynnti fyrr í vikunni ásamt samstarfsfólki sínu skýrslu um fjölmiðlamarkaðinn og það hvernig Ríkisútvarpið gín yfir öðrum fyrirtækjum á þeim markaði.

Þá verður tali einnig vikið nýjum hagræðingartillögum sem ríkisstjórnin er komin með á sitt borð. Þar er stefnt því spara 70 milljarða á næstu fimm árum. Það eru innan við 1% aðhaldsaðgerðir á hvert ár.

Innansveitarkronika

Í þættinum er einnig rætt við Álfhildi Leifsdóttur, sveitarstjórnarkonu í Skagafirði og framákonu í Vinstrihreyfingunni grænu framboði. Hún er afar ósátt við þær fyrirætlanir meirihlutans í sveitarfélaginu selja tvö af tíu félagsheimilum héraðsins. Hún ræðir þau mál og stöðu VG sem virðist rústir einar eftir það afhroð sem flokkurinn galt í síðustu alþingiskosningum.

Ekki missa af spennandi samfélagsumræðu í Spursmálum hér á mbl.is alla föstudaga klukkan 14.

Nafnalisti

  • Álfhildur Leifsdóttirgrunnskólakennari
  • Ásthildur Lóa Þórhallsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Björn Brynjólfur
  • Björn Brynjúlfur Björnssonhagfræðingur
  • Eva Hauksdóttirmóðir Hauks Hilmarssonar
  • Heiða Björg Hilmisdóttirformaður
  • Páll Steingrímssonskipstjóri hjá Samherja
  • Rósa Guðbjartsdóttirbæjarstjóri Hafnarfjarðar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 267 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 94,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.