Líf í Grindavíkurhöfn: Stefna á fulla keyrslu

Ritstjórn mbl.is

2025-04-02 20:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Það var líf í Grindavíkurhöfn í dag þrátt jarðhræringar á Reykjanesskaganum undaförnu. Framkvæmdastjóri Vísis reiknar með fullri keyrslu næstu mánuðina.

Við fórum inn með helming af mannskap og tókum hálfan dag. Svo reiknum við bara með fullri keyrslu vonandi næstu mánuði eins og við erum búin gera síðan 1. september, segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, í samtali við mbl.is.

Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins voru á vettvangi þegar línuskip Vísis hf. í Grindavík, Sighvatur GK-57, landaði í Grindavíkurhöfn en hann kom í land með ríflega 70 tonn af þorski, ýsu, löngu og steinbít.

Voru með mikið af fiski í húsunum er það gaus

Pétur segir starfsemi Vísis hafi legið niðri á mánudaginn þegar gaus en hann segir frá og með morgundeginum hefjist á ný full starfsemi.

Fyrirtækið er með heilmikla starfsemi í Grindavík og er t.a.m. með saltfiskvinnslu og frystihús í bænum.

Það lönduðu tveir um helgina á laugardeginum úr Vestmannaeyjum þannig við vorum með óvenju mikið af fiski í húsunum núna þegar það gaus. Svo landaði Páll [Jónsson GK] náttúrulega á sunnudeginum, segir Pétur.

Nafnalisti

  • Pállhagfræðingur með doktorsgráðu frá Yale háskóla
  • Pétur Hafsteinn Pálssonframkvæmdastjóri Vísis
  • Sighvatur GKlínuskip

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 200 eindir í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 7 málsgreinar eða 70,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.