Lýstu van­trausti á fram­kvæmda­stjóra Félagsbústaða vegna „ógnarstjórnunar“

Kjartan Kjartansson

2025-03-13 13:14

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Allt almennt starfsfólk Félagsbústaða skrifaði undir yfirlýsingu um vantraust á hendur framkvæmdastjóra stofnunarinnar eftir hann rak starfsmann fyrir allra augum á starfsmannafundi í síðasta mánuði. Starfsfólkið sakar framkvæmdastjórann um ógnarstjórn og virðingarleysi.

Yfirlýsingin var send stjórn Félagsbústaða í síðustu viku, nokkrum dögum eftir uppákomuna þar sem Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri stofnunarinnar, rak starfsmann sem spurði út í nýlega starfsánægjukönnun á starfsmannafundi í lok febrúar. Allir starfsmenn stofnunarinnar fyrir utan þrjá stjórnendur skrifuðu undir yfirlýsinguna.

Vísar starfsfólkið til vaxandi óánægju og ótta vegna starfshátta Sigrúnar. Vanlíðan starfsfólk hafi aukist vegna óviðunandi stjórnarhátta hennar, skorts á virðingu og stuðningi auk almenns óöryggis sem starfsmenn upplifi í daglegu starfi hjá stofuninni.

Þetta hefur leitt til mikillar streitu, veikinda, óöryggis og óánægju, sem aftur hefur áhrif á fagleg vinnubrögð og getu fyrirtækisins til sinna lögbundnu hlutverki sínu, segir í yfirlýsingunni sem var einnig send á Heiðu Björg Hilmisdóttur, borgarstjóra, og borgarfulltrúa.

Óskar starfsfólkið eftir því stjórn Félagsbústaða fái fagaðila til þess skoða starfsemina og stjórnarhætti Sigrúnar og hún verði send í tímabundið leyfi á meðan. Varar það við því óbreytt ástand geti valdið varanlegum skaða á starfseminni ásamt tapaðri þekkingu vegna brotthvarfs starfsfólks.

Félagsbústaðir eru sjálfseignastofnun sem er að öllu leyti í eigu Reykjavíkurborgar. Hún heldur utan um þúsundir félagslegra íbúða sem félagsþjónusta borgarinnar úthlutar og sýslar þannig með margmilljarða króna eignir.

Brottreksturinn áfall fyrir starfsfólkið

Óánægja starfsfólksins endurspeglast í starfsánægjukönnunum sem stéttarfélagið Sameyki hefur látið gera undanfarin ár. Frá árinu 2022 hefur einkunn sem starfsmenn stofnunarinnar gefa henni, stjórnunarháttum og starfsanda fallið umtalsvert.

Utanaðkomandi ráðgjafi var fenginn til þess taka starfsmannaviðtöl til þess bregðast við ástandinu á vinnustaðnum í vetur. Starfsfólk fékk hins vegar ekki afrit af niðurstöðum þeirrar úttektar, aðeins munnlega kynningu, þrátt fyrir eftir því hefði verið kallað. Sama átti við um stjórn Félagsbústaða. Hún fékk aðeins munnlega kynningu á niðurstöðunum en ekki skýrslu ráðgjafans til framkvæmdastjórans.

Atvikið sem varð kveikjan því starfsfólkið lýsti yfir vantrausti á Sigrúnu átti sér stað á starfsmannafundi föstudaginn 28. febrúar. Þá rak framkvæmdastjórinn starfsmann sem spurði fyrir hönd starfsfólksins hvort ekki stæði til kynna niðurstöður nýjustu starfsánægjukönnunar Sameykis sem birtar voru í febrúar, þær verstu til þessa, fyrir framan samstarfsfélaga hans.

Í yfirlýsingunni segir uppákoman hafi verið mjög niðurlægjandi og mikið áfall fyrir starfsfólkið. Hún hafi verið lýsandi dæmi um þá ógnarstjórnun, óásættanlegt virðingarleysi gagnvart starfsfólki og undirstrikar alvarleika málsins.

Funda með starfsfólki í dag

Sigrún vildi ekki tjá sig um vantraustsyfirlýsingu starfsfólksins þegar eftir því var leitað í dag. Hún vísaði á Ellý Öldu Þorsteinsdóttur, stjórnarformann Félagsbústaða.

Ellý Alda segir stjórnina taka málið alvarlega. Tveir stjórnarfundir hafi verið haldnir um málið og stjórnin vilji tryggja eins sanngjarna og faglega úrlausn og hægt . Funda eigi með starfsfólki stofnunarinnar í dag en Ellý vildi ekki segja hver viðbrögð stjórnarinnar yrðu áður en þau yrðu kynnt starfsfólkinu.

Sigrún var ráðin framkvæmdastjóri Félagsbústaða eftir forveri hennar sagði af sér vegna hundruð milljóna króna framúrkeyrslu við framkvæmdir í Breiðholti árið 2019. Hún var áður bæjarstjóri Sandgerðis í tíð meirihluta Samfylkingarinnar og óháðra. Áður var hún framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi til fjölda ára.

Nafnalisti

  • Ellý Alda Þorsteinsdóttirfélagsráðgjafi
  • Heiða Björg Hilmisdóttirformaður
  • Sigrún Árnadóttirframkvæmdastjóri Félagsbústaða

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 554 eindir í 31 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 28 málsgreinar eða 90,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.