ViðskiptiHeilsa og lífsstíll

Að hugsa út fyrir boxið

Ritstjórn mbl.is

2025-03-29 16:38

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Innan um fallega list og handverk í Hönnunarsafninu í Garðabæ finna vöruhönnuðinn Þórunni Árnadóttur en hún er þar um þessar mundir í vinnustofudvöl.

Þórunn býður blaðamanni upp á kaffistofu þar sem við fáum næði til ræða um hönnun, en Þórunn er ein fjölmargra sem eiga vörur á sýningu á HönnunarMars sem hefst í næstu viku.

Hundruð þúsunda kerta

54 Celsius snýst um hugsa út fyrir boxið; um hvað kerti eru í raun, hvaða möguleika hafa þau sem við erum ef til vill ekki nýta? Hvað gerist þegar við kveikjum á kerti? Ég er búin vera með Pyropet í sölu síðan 2014 og í kjölfarið stofnuðum við fyrirtækið 54 Celsius, sem er einmitt bræðslumark kertavax. Við höfum verið með margar vörulínur, allt í svipuðum dúr, segir Þórunn, en þau selja mest í heildsölu í Bandaríkjunum.

Við erum með vöruhús á leigu í Bandaríkjunum og þaðan er vörunum dreift í búðir. Kertin eru búin til víða; í Bandaríkjunum, Kína, Litáen og Víetnam, segir hún.

Við höfum selt í kringum fjögur hundruð þúsund Pyropet-kerti og höfum líka verið vinna í samstarfi við önnur fyrirtæki gera kerti, eins og fyrir Disney, Liquid Death & Martha Stewart og Tim Burton. Við höfum líka búið til sérstök kerti fyrir ýmsar aðrar verslanakeðjur, eins og til dæmis bóka- og gjafavörubúðina Barnes & Noble.

Hönnun og framleiðsla

54 Celsius selur vörur í gegnum heimasíðu sína en Þórunn fer gjarnan utan á sölusýningar og selur þá vörur sínar í búðir í gegnum þær.

Við höfum líka verið dreifingaraðilar fyrir vörur eftir aðra sem passa vel við okkar vörur. Við hönnum líka og þróum vörur sérstaklega fyrir fyrirtæki, hvort sem það eru kerti eða eitthvað annað. Það er í raun nýtt hliðarfyriræki, sem við erum setja formlega á laggirnar þessa dagana og kallast Newness Factory, segir hún.

Ég ferðast mikið til skoða framleiðsluna því stundum er gott skoða prótótýpuna og sjá hvernig framleiðslan er. Nýtilkomnir Kína-tollar í Bandaríkjunum eru ákveðin áskorun, en við erum núna farin skoða frekar framleiðslu á Indlandi og í Indónesíu, segir hún og nefnir þau séu með umboðsmenn sem hjálpa til við finna staði fyrir framleiðslu og sem sinna gæðaeftirliti.

Þórunn segir sérstaka tilfinningu fylgja því ferðast til framandi landa og sjá sínar vörur framleiddar í verksmiðjum hinum megin á hnettinum.

Ég hafði í raun bara séð nokkur kerti saman í hillum en þegar ég fór í verksmiðju í Kína ég heilu stæðurnar af Pyropet-kertum. Þá ég hvernig þetta virkar í fjöldaframleiðslu og jafnframt kvikna alltaf nýjar hugmyndir þegar ég hvernig framleiðslan fer fram. Mér finnst líka bara mikilvægt sjá með eigin augum framleiðsluna, aðstöðuna og hitta fólkið sem við erum vinna með.

Skilaboð sem birtast

Þórunn hefur einnig hannað skemmtileg kerti með földum skilaboðum sem koma í ljós þegar þau brenna. Einnig hannaði hún afmæliskerti fyrir kökur með skemmtilegum óskum á. Eins hannaði Þórunn kertið Heart Burn, en þar sjá hönd sem heldur á hjarta sem svo blæðir úr þegar það brennur.

Við erum svolítið skoða hvað er kerti og hvernig er hægt nýta aðferðir til búa til eitthvað allt annað en venjulegt kerti sem brennur og hverfur.

Í vinnustofudvöl sinni hefur Þórunn verið endurskoða ilmstrá, sem oftast birtast sem tréstrá sem standa í flösku með ilmvökva. Þegar vökvinn sogast upp í viðinn, berst ilmur um rýmið.

Það sem ég er gera er endurskoða þessa virkni, hvernig nota pappír til þess soga í sig ilmvökvann og dreifa um rýmið.

Ítarlegt viðtal er við Þórunni í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.

Nafnalisti

  • Barnesafar áræðinn kantmaður sem ógnar sífellt með hraða sínum og krafti
  • Celsiusorkudrykkur
  • Heart Burn
  • HönnunarMarshönnunarhátíð
  • Liquid Death
  • Martha Stewartsjónvarpsstjarna
  • Newness Factory
  • Noblebreskur ofurbílaframleiðandi
  • Tim Burtonleikstjóri
  • Þórunn Árnadóttirhönnuður kertisins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 653 eindir í 31 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 28 málsgreinar eða 90,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.