Til viðræðna eftir dráp helgarinnar

Ritstjórn mbl.is

2025-03-24 06:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fulltrúar Bandaríkjanna og Úkraínu komu saman til fundar í Sádi-Arabíu í gær, til viðræðna um einhvers konar vopnahlé í varnarstríði Úkraínumanna gegn Rússum.

Í Washington segjast menn vonast eftir raunverulegum framförum á meðan í Kreml er varað við erfiðum samningaviðræðum og langri leið til friðar.

Forsetinn Donald Trump virðist vilja binda snöggan enda á stríðið og vonast til viðræðurnar í Ríad, þar sem Bandaríkjamenn ræða við sendinefndir Úkraínu og Rússlands hvora í sínu lagi, komi af stað einhverjum straumhvörfum.

Bíða þyrfti dagsins í dag

Í fyrstu áttu viðræðurnar eiga sér stað samhliða, þar sem Bandaríkjamenn myndu bókstaflega ganga á milli sendinefndanna, en úr varð þær verða hvorar á eftir öðrum.

Varnarmálaráðherrann Rústem Úmerov fer fyrir úkraínsku nefndinni. Í tilkynningu í gær sagði hann á dagskrá væru tillögur vernd orkuinnviða og annarra bráðnauðsynlegra mannvirkja, og nefndirnar ynnu fjölda flókinna tæknilegra atriða.

Háttsettur embættismaður innan sömu nefndar tjáði fréttaveitu AFP, gegn nafnleynd, viðræðurnar gengju vel en bíða þyrfti dagsins í dag til hægt yrði draga ályktanir.

Drápu saklausa borgara

Af aðfaranótt sunnudags aftur á móti draga þá ályktun meðal Rússa lítill vilji til hætta linnulausum árásum á saklausa borgara Úkraínu.

Þrír létust þá nótt í höfuðborginni Kænugarði þegar Rússar gerðu á hana umfangsmikla árás með fjölda sprengjuhlaðinna vélfygla.

Fimm ára telpa var á meðal þeirra sem létust, ásamt föður sínum. Þá varð áttræð kona miklum eldi bráð, sem braust út eftir rússneskur árásardróni hæfði íbúðablokk.

Hermt var í gær öskur hennar hefðu glumið svo um hverfið, þar sem hún brann lifandi, ekki færi á milli mála þar hefðu Rússar myrt einn til viðbótar í innrásarstríði sínu.

Ellefu mánaða barn á meðal særðra

Fjórir borgarar til viðbótar létust í árásum Rússa annars staðar í landinu. Enn fleiri særðust, þar af tíu í Kænugarði, og var ellefu mánaða barn á meðal þeirra.

Nóttina áður, í borginni Saporisjíu, drápu Rússar sautján ára stúlku og rúmlega fertugan föður hennar með sams konar árás.

Móðir hennar, sem var 38 ára, lést á sjúkrahúsi nokkrum klukkustundum síðar eftir hafa verið dregin undan braki íbúðarhússins.

Nánari umfjöllun er finna í Morgunblaðinu í dag.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Rústem Úmerov

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 395 eindir í 20 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 18 málsgreinar eða 90,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,68.