Gómaði Teslu-skemmdarvarg og lét hann heyra það – Sjáðu myndbandið

Pressan

2025-04-01 20:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Maður sem framdi skemmdarverk á Teslu-bifreið ókunnugs manns var handtekinn af lögreglu og kærður vegna málsins. Atvikið átti sér stað á bílastæði fyrir utan líkamsræktarstöð Planet Fitness í Pennsylvaníu á dögunum.

Eigandi bifreiðarinnar tók eftir því þegar hann kom heim búið var setja hakakrossinn á aðra hlið bílsins. Virðist viðkomandi hafa notað lykil við verknaðinn.

Eigandi bílsins fór í myndavélakerfi hans og þá hvar bifreið var lagt við hlið hans á bílastæði líkamsræktarstöðvarinnar. Úr bílnum steig út maður og var hann býsna laumulegur á meðan hann merkti bílinn.

Eigandinn hafði samband við líkamsræktarstöðina og var með auðveldum hætti hægt bera kennsl á skemmdarvarginn. Í ljós kom hann heitir Chadd Ritenbaugh og er 55 ára gamall.

Myndband af því þegar eigandi bílsins mætir á vettvang til ræða við Chadd hefur verið birt á fréttamiðlum vestan hafs. Á myndbandinu sést þegar Chadd virðist fullur iðrunar og neitar því til byrja með hafa notað lykil. Þetta var litur, ég þessu af með tusku, segir hann.

Tónninn breytist þegar hann fær upplýsingar um bíllinn í höndum lögreglunnar sem vinni því taka fingraför af henni. Bendir eigandinn honum á hann sjáist nota lykil í upptökunni.

Mér þykir þetta leiðinlegt og ég biðst afsökunar. Ég hef ekkert á móti bílnum þínum eða þér. Augljóslega hef ég ýmislegt á móti Elon Musk en þetta var ekki rétta leiðin til sýna það.

Chadd var handtekinn skömmu síðar og kærður fyrir skemmdarverkið.

Borið hefur á skemmdarverkum í Bandaríkjunum á Tesla-bifreiðum í eigu venjulegs fólks sem situr oftar en ekki uppi með kostnaðinn.

Nafnalisti

  • Chadd Ritenbaugh
  • Elon Muskforstjóri
  • Planet Fitnessbandarísk líkamsræktarstöð

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 284 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 18 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.