Merkið stendur þó maðurinn falli

Birgir Dýrfjörð

2025-03-24 13:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Stofnum sannleikssjóð fyrir Ásthildi Lóu

Í upphafi ofsóknanna á Ásthildi Lóu Þórsdóttur vakti ég athygli á gjörningur hennar braut ekki nein lög í landinu,það var aldrei neitt afbrot, níðið var bara rætinn uppspuni um ekki neitt.

Blaðamenn og aðrir sem fjölluðu um málið hefðu ekki þurft annað en opna tölvuna sína.

Þar segir frá þeim breytingum á lögum Nr. 61/2007 kynferðislegur lágmarksaldur er hækkaður úr 14 í 15 ár. Sjálfræði um kynlíf hefst því við 14 ára aldur.

Hefðu fréttamenn og konur unnið vinnuna sína þá hefðu ofsóknir gegn Ásthildi Lóu aldrei orðið til.

Þá hefði öllum sem kunna lesa verið ljóst, Ásthildur Lóa hafði ekki framið neitt lögbrot.

Auðvitað hafa blaðamenn almennt lesskilning, en ekki allir því miður. Þar að auki eru of margir í þeirra hópi sem gefa bara skít í sannleikann og njóta þess best laxera yfir fólk.

Þeir blaðamenn og konur og reyndar fleiri eru þau sem oftast eyðileggja siðaða umræðu.

Venjulegu fólki ofbýður rógurinn og níðið og miskunnarleysið í förinni Ásthildi Lóu.

Meira að segja samtök sem hafa það markmiði styðja og vera skjól þeirra kvenna og barna, sem sem ofsótt eru, meira að segja þau tóku sér refsivönd í hönd til hýða konuna.

Ég er hér vitna til ummæla Drífu Sædal talskonu Stígamóta um yfirlýsinguna sem kom frá Ásthildi Lóu um hennar mál

Þar segir orðrétt: Stígamót: Gamalkunnugt stef í yfirlýsingu Ásthildar Lóu Ásthildur Lóa Þórsdóttir segist í yfirlýsingu í morgun ekki hafa höndlað aðstæður í samskiptum við barnsföður sinn sem var á unglingsaldri. Talskona Stígamóta (Drífa Snædal) segir yfirlýsinguna vera gamalkunnugt stef hjá fólki sem eigi í kynferðissambandi við börn.

Þessi gildishlaðna yfirlýsing er vatnsgusa framan í ofsótta manneskju sem leitaði skjóls.

Sannleikssjóð fyrir Ásthildi Lóu

Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur hefur lagt til Ásthildur Lóa fari í mál við ofsóknarliðið sem henni hefur sótt. Það finnst mér góð hugmynd.

Málaferli kosta mikla peninga og þeir eru örugglega ekki til í vösum Ásthildar Lóu, því legg ég til almenningur safni í sjóð til kosta málaferli Ásthildar gegn því ógeðslega fólki og stofnunum sem ábyrgðina bera á aðförinni mannorði hennar og annarra.

Það er allra hagur stöðva það ógeðfellda lið sem ástundar mannorðsníð eins og það sem Ásthildur Lóa hefur mátt þola af hálfu fólks, sem virðist innansleikt eins og hundadallur, af allri samúð og sjálfsvirðingu.

Höfundur er rafiðnaðarmaður.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóaformaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Ragnar Þór formaður VR
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Drífa Sædalforseti Alþýðusambandsins
  • Drífa Snædalfráfarandi forseti ASÍ
  • Haukur Arnþórssonstjórnsýslufræðingur

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 415 eindir í 22 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 20 málsgreinar eða 90,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.