Árni Grétar aftur orðinn aðstoðarmaður Guðrúnar
Ritstjórn Viðskiptablaðsins
2025-03-24 13:38
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Árni Grétar Finnsson hefur tekið við starfi aðstoðarmanns Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann starfaði áður sem aðstoðarmaður Guðrúnar í dómsmálaráðuneytinu og heldur því samstarf þeirra áfram á nýjum vettvangi.
Hann hefur mikla reynslu af félagsstörfum og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum innan Sjálfstæðisflokksins, m.a. sem formaður Stefnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði.
Árni Grétar lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2022.
Hann hefur starfað sem lögmaður á efnahags- og samkeppnishæfnissviði Samtaka atvinnulífsins, sem fulltrúi á Landslögum — lögfræðistofu og hjá CATO lögmönnum, auk þess að hafa verið blaðamaður á Morgunblaðinu og á mbl.is.
Auk þess sat Árni í stjórn Orators og Stúdentaráðs Háskóla Íslands og hefur hann einnig starfað í fjölmörgum nefndum og stjórnum á vegum stjórnvalda og í atvinnulífinu.
Nafnalisti
- Árni Grétar Finnssonlögfræðingur
- Guðrún Hafsteinsdóttirfyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins
- Stefnirsjóðastýringarfélag í eigu Arion banka
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 128 eindir í 6 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 5 málsgreinar eða 83,3%.
- Margræðnistuðull var 1,43.