EfnahagsmálViðskipti

Víetnamar gætu tapað á tollastríði Trump

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-03-14 10:28

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Eftir Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lagði háa tolla á kínverskar vörur árið 2018, leituðu fjölmörg alþjóðleg fyrirtæki nýjum framleiðslulöndum til lækka viðskiptakostnað sinn. Það gæti snúist við eftir Trump fór í tollastríð við hálfan heiminn.

Víetnam reyndist einn stærsti sigurvegari breytinganna 2018, enda landið þegar í vexti sem lykilaðili í alþjóðlegum framleiðslu- og viðskiptakeðjum.

Sjá einnig]] Staða Íslands í tollastríði Trumps

Áhrif tollanna urðu mikil strax á fyrstu árum eftir þeir voru lagðir á. Fjöldi stórfyrirtækja, þar á meðal Apple, Samsung og Nike, fluttu hluta af framleiðslu sinni frá Kína til Víetnam.

Landið naut góðs af lágum framleiðslukostnaði, hagstæðum viðskiptasamningum og sífellt bættum innviðum.

Mikill uppgangur í Haiphong

Mikill uppgangur hefur verið í Haiphong og höfnin þar er orðið ein mikilvægasta flutningamiðstöð landsins. Útflutningur í gegnum höfnina nemur um 26 milljörðum Bandaríkjadala á ári.

Haiphong, sem er stærsta hafnarborg norðurhluta Víetnam og þriðja stærsta höfn landsins, hefur upplifað gífurlegan vöxt í vöruflutningum frá 2018.

Höfnin hefur verið stækkuð og nútímavædd með betri flutningaaðstöðu, stærri gámahöfnum og nýjum siglingaleiðum sem tengja hana betur við helstu alþjóðlegu markaði.

Víetnam hefur þannig styrkt stöðu sína sem lykilframleiðsluland í Asíu, með Haiphong sem einni helstu útflutningshafnar landsins.

Þessi þróun hefur ekki aðeins leitt til aukinna erlendra fjárfestinga heldur einnig skapað þúsundir nýrra starfa og stuðlað áframhaldandi hagvexti landsins.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 240 eindir í 14 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 85,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.