Skefur ekki utan af hlutunum – „Við getum ekki treyst Bandaríkjunum“

Ritstjórn DV

2025-04-02 07:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Vestrænar leyniþjónustustofnanir geta ekki lengur treyst Bandaríkjunum. Þetta er mat Frank Jensen, fyrrum yfirmanns dönsku leyniþjónustunnar. Hann er mjög gagnrýninn á Donald Trump og hans fólk.

Þegar Jensen stýrði dönsku leyniþjónustunni var enginn efi í hans huga um hægt væri treysta Bandaríkjamönnum. Háleynilegar upplýsingar voru í öruggum höndum vestan megin við Atlantshafið.

En margt hefur breyst síðan þá. Jensen er ekki lengur yfirmaður hjá dönsku leyniþjónustunni og Donald Trump er með lyklavöldin í Hvíta húsinu og hefur sér til halds og trausts ríkisstjórn sauðtryggra aðdáenda sinna.

Ef ég væri yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar í dag, þá myndi ég hafa ákveðnar efasemdir um hvort það sem ég sendi til Bandaríkjanna yrði áfram leynilegt. Það er vegna þeirrar stjórnar sem situr í Hvíta húsinu, sagði hann í samtali við Ekstra Bladet og bætti við hann myndi ekki deila öllum upplýsingum með Bandaríkjamönnum í dag. Það hefði hann gert áður fyrr, nema það væri ólöglegt, en það myndi hann ekki gera í dag.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Ekstra Bladetdanskt dagblað
  • Frank Jensenþáverandi yfirborgarstjóri Kaupmannahafnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 175 eindir í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.