Stjórnmál

Hnattrænar áskoranir og málefni Úkraínu rædd á fundi með forseta Alþjóðabankans

Utanríkisráðuneyti

2025-03-07 13:12

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hlutverk Alþjóðabankans á tímum örra breytinga, skertrar fjármögnunar til þróunarsamvinnu og erfiðrar skuldastöðu fjölmargra þróunarríkja var meðal þess sem rætt var á fundi fulltrúa kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) í Alþjóðabankanum með Ajay Banga, forseta bankans, í Stokkhólmi í dag. Vandinn sem fátækustu ríkin standa frammi fyrir er gríðarlegur og fer vaxandi á sama tíma og dregið hefur úr stuðningi við þau.

Alþjóðabankinn er einstök stofnun og hefur eflst mikið á undanförnum árum þökk metnaðarfullu umbótarferli undir stjórn Ajay Banga. Mikilvægi Alþjóðabankans í takast á við hnattrænar áskoranir á borð við loftslagsvandann, afleiðingar aukinna átaka og ójöfnuðar hefur sjaldan verið meiri, ekki síst í ljósi samdráttar í fjármögnun þróunarsamvinnu, en að sama skapi hefur hann aldrei verið jafn vel í stakk búinn, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Auk þess voru málefni Úkraínu rædd en einhugur er í kjördæminu um sterkan áframhaldandi stuðning og samstöðu. Alþjóðabankinn gegnir veigamiklu hlutverki í stuðningi við Úkraínu, einna helst hvað varðar viðhald og enduruppbyggingu á innviðum sem hafa sætt skemmdum eða eyðilagst vegna innrásarstríðs Rússlands. Þá er bankinn lykilaðili í halda uppi grunnþjónustu og er náinn samstarfsaðili úkraínskra stjórnvalda umbótum og baráttu gegn spillingu.

Stuðningur við Úkraínu í gegnum Alþjóðabankann er hryggjarstykki í stuðningi Íslands við enduruppbyggingu landsins. Ásamt umfangsmikilli getu til enduruppbyggingar er bankinn í einstakri stöðu til hraða enn frekar árangursríkri og metnaðarfullri umbótavegferð úkraínskra stjórnvalda, segir Þorgerður Katrín.

Nafnalisti

  • Ajay Bangaforseti Alþjóðabankans
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 242 eindir í 9 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 88,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.