Heiða Björg mótmælir handtöku

Ritstjórn mbl.is

2025-03-24 13:48

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, tekur þátt í sameiginlegri áskorun evrópskra borgarstjóra til tyrkneskra yfirvalda, vegna skyndilegrar handtöku borgarstjóra Istanbúl, Ekrem İmamoğlu, þann 19. mars.

Það eru samtökin EuroCities sem halda utan um áskorun borgarstjóranna, en meðal borgarstjóra sem hafa skrifað undir eru Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar, Juhana Vartiainen, borgarstjóri Helsinki, og Erik Lae Solberg, borgarstjóri Óslóar, því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Það skiptir máli Reykjavík taki alltaf afstöðu með mannréttindum og lýðræði. Hér er lýðræðinu stórlega ógnað, og því er þessi handtaka óásættanleg, segir Heiða Björg í tilkynningunni.

Handtakan fordæmd

Í sameiginlegri áskorun segir:

Við [borgarstjórar í Evrópu] fordæmum handahófskennda fangelsun borgarstjóra Istanbúl og lýsum yfir djúpum áhyggjum af stöðunni, sem og endurteknum árásum á grundvallarréttindi og sjálfstæði sveitarfélaga í Tyrklandi. Þessar handtökur, ásamt stöðugum þrýstingi á lýðræðislega kjörna fulltrúa, marka nýtt tímabil brota á lýðræðislegum ferlum í landinu.

Ekrem Imamoğlu var kjörinn í frjálsum kosningum og er tákn um von fyrir framtíð sem byggir á fjölhyggju, réttlæti og virðingu fyrir grundvallarfrelsi.

Við skorum því á tyrknesk yfirvöld :

Leysa borgarstjóra Istanbúl og stjórnarandstæðinga úr haldi þegar í stað.

Hætta pólitískum ákærum, þrýstingi og árásum á sjálfstæði sveitarfélaga.

Tryggja virðingu fyrir lýðræðislegum ferlum og mannréttindum í Tyrklandi.

Enn fremur hvetjum við stofnanir Evrópu til grípa tafarlaust til aðgerða til tryggja frelsi kollega okkar og gera allt sem nauðsynlegt er til vernda réttarríkið í Tyrklandi.

Í þessu máli stöndum við í fullri samstöðu með íbúum Istanbúl og öllum Tyrkjum sem hafa áhyggjur af örlögum borgarstjórans.

Nafnalisti

  • Anne Hidalgoborgarstjóri Parísar
  • Ekrem Imamoğluborgarstjóraefni Lýðflokks lýðveldisins
  • Ekrem İmamoğluborgarstjóraefni Lýðflokks lýðveldisins
  • Erik Lae Solberg
  • Heiða Björg Hilmisdóttirformaður
  • Juhana Vartiainen

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 279 eindir í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 86,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.