Orri kominn á blað í fyrsta leiknum sem fyrirliði
Smári Jökull Jónsson
2025-03-20 20:33
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Staðan að loknum fyrri hálfleik í leik Íslands og Kósovó er jöfn. Heimamenn komust yfir en Orri Steinn Óskarsson jafnaði metin í sínum fyrsta leik sem landsliðsfyrirliði.
Leikur Íslands og Kósovó í Þjóðadeild UEFA er í fullum gangi en leikurinn er sá fyrsti undir stjórn nýja landsliðsþjálfarans Arnars Gunnlaugssonar.
Leikurinn er liður í umspili um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar en liðin mætast á nýjan leik á sunnudaginn.
Kósovó tók forystuna í leiknum á 19. mínútu. Lumbardh Dellova skoraði þá með skoti á nærstöngina eftir vandræðagang í íslenska liðinu í kjölfarið á föstu leikatriði Kósóva.
Aðeins þremur mínútum síðar jafnaði hins vegar Orri Steinn Óskarsson metin í sínum fyrsta leik sem fyrirliði Íslands. Orri Steinn fékk þá frábæra sendingu innfyrir vörn heimamanna frá Ísaki Bergmann Jóhannessyni, lék á Arijanet Muric í markinu og kláraði vel.
Staðan er í hálfleik er 1–1 en leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Nafnalisti
- Arijanet Muricmarkvörður Burnley
- Arnar Gunnlaugssonþjálfari
- B-deild1. sæti
- Ísak Bergmann Jóhannessoníslenskur landsliðsmaður
- Lumbardh Dellova
- Orri Steinn Óskarssonframherji
- Stöð 2 Sporthluti af Sportpakkanum
- Þjóðadeild UEFAA landslið karla
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 154 eindir í 9 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 88,9%.
- Margræðnistuðull var 1,76.