Barna­málaráðherra eignaðist barn með tánings­pilti þegar hún var 22 ára

Eiður Þór Árnason

2025-03-20 18:09

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra átti í ástarsambandi við fimmtán ára pilt þegar hún var sjálf 22 ára og eignaðist með honum son einu ári síðar. Faðirinn sakar hana um tálmun en segist samt hafa verið rukkaður um meðlag. Barnið fæddist fyrir um þremur áratugum.

Fylgst er með framvindu mála í vaktinni neðan. Fyrst var greint var frá þessu í Speglinum á RÚV. Ásthildur leiddi unglingastarf í trúarsöfnuðinum Trú og líf við Smiðjuveg í Kópavogi þegar hún kynntist piltinum sem var þá fimmtán ára. heitir Eiríkur Ásmundsson.

Farið leynt með sambandið

sögn RÚV leiðbeindi Ásthildur Lóa drengnum sem hafi komið af brotnu heimili og þess vegna leitað í trúarsöfnuðinn. Jafnframt kemur fram í frétt RÚV forsætisráðuneytið hafi verið upplýst um málið fyrir viku síðan og tjáð erindið væri trúnaðarmál. Þrátt fyrir það hafi barnamálaráðherra fengið veður af því og sett sig í samband við sendandann.

Forsætisráðuneytið vísar þessu á bug og hafnar því ráðuneytið hafi rofið trúnað. Í upphaflegu erindi hafi sendandi óskað eftir fundi með forsætisráðherra án þess fundarefnið væri tilgreint og í seinna erindi hafi fundarbeiðnin verið ítrekuð, tekið fram málið varðaði menntamálaráðherra og það væri í lagi hann sæti fundinn.

Eiríkur staðfestir í samtali við RÚV þau hafi átt í ástarsambandi fljótlega eftir hann leitaði í trúarsöfnuðinn. Leynd hafi alla tíð hvílt yfir sambandinu.

Ekki náðist í Eirík eða Ingu Sæland, formann Flokks fólksins við vinnslu fréttarinnar.

Fréttin hefur verið uppfærð. Fram kom í eldri fyrirsögn Ásthildur hafi verið 23 ára þegar hún eignaðist barnið en hið rétta er hún var á 23. aldursári þegar hún var barnshafandi.

Ef vaktin birtist ekki er ráð endurhlaða síðunni.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Eiríkur Ásmundsson
  • Inga Sælandformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 297 eindir í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 89,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.