Roðsnakk frá 19 ára frum­kvöðli slær í gegn

Magnús Hlynur Hreiðarsson

2025-03-29 14:06

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ungur frumkvöðull, sem er aðeins 19 ára gamall segir það vanti frumkvöðla andann í ungu kynslóðina á Íslandi, en sjálfur er frumkvöðulinn koma með Roðsnakk á markað, sem hefur þegar fengið mjög góðar viðtökur á matarmörkuðum. Samtök smáframleiðenda matvæla voru með aðalfund sinn á Hótel Selfossi í gær en samhliða aðalfundinum eða síðdegis á fimmtudag var haldinn matarmarkaður, sem var öllum opin á hótelinu. Fjölmargir mættu til kynna sér framleiðsluna og fengu smakka á afurðum smáframleiðenda. Einn framleiðandi og frumkvöðull vakti sérstaka athygli með sína vöru en það er roðsnakk en 19 ára frumkvöðulinn heitir Jóhann Tómas Portal og er úr Laugardal í Reykjavík. Ég er hérna með nýja vöru, Roðsnakk. Þetta er snakk unnið úr þorskroði, sem er 63 % prótein, kollagen ríkt og nóg af ómega þrjú og vítamíni. Þetta er bara vonandi nýja æðið, segir Tómas. En hvað kom til Jóhann Tómas fór út í þessa framleiðslu? Þetta byrjaði í menntaskóla fyrir þremur árum þar sem ég tók þátt í ungir frumkvöðlar og svo hef ég bara verið halda áfram með þetta verkefni síðan þá og þetta hefur bara stækkað og stækkað. Fyrst fáum við roð frá Brim og þurrkum það svo hjá Von og svo vinnum við það og breytum því í snakk hjá Matís, segir Tómas. Og þú ert bara 19 ára gamall? , ég er bara 19 ára fæddur 2005. Fjöldi framleiðenda tók þátt í matarmarkaðnum á Hótel Selfossi. Hér er verið kynna Dalahvítlauki en hjónin Haraldur Guðjónsson og Þórunn Ólafsdóttir rækta eigin hvítlauk í Dölunum með lífrænum og sjálfbærum aðferðum. Og Tómas hefur þetta segja um unga frumkvöðla á Íslandi. Mér finnst eins og vanti frumkvöðlaandann í mína kynslóð. Fólk er svolítið komið á það gamla kynslóðin gerir fyrirtækið, ekki núverandi kynslóð, þau fatta ekki við þurfum líka gera eitthvað nýtt, við þurfum skapa. Samtök smáframleiðenda eru öflug samtök, sem eru gera góða hluti.

Nafnalisti

  • Haraldur Guðjónssonhjónunum
  • Jóhann Tómas Portal
  • Þórunn Ólafsdóttirformaður sjálfboðaliðasamtakanna Akkeris

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 358 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 88,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.