Íþróttir

Glódís ekki með í lands­leikjunum

Ingvi Þór Sæmundsson

2025-03-31 10:37

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Í fyrsta sinn frá því hún byrjaði spila með íslenska landsliðinu 2012 missir Glódís Perla Viggósdóttir af landsleikjum vegna meiðsla.

Glódís hefur dregið sig út úr íslenska landsliðshópnum sem mætir Noregi og Sviss í Þjóðadeildinni.

Glódís hefur glímt við meiðsli að undanförnu en var í byrjunarliði Bayern München þegar liðið sigraði Bayer Leverkusen, 20, í þýsku úrvalsdeildinni. Landsliðsfyrirliðinn var tekin af velli þegar átta mínútur voru til leiksloka.

Elísa Viðarsdóttir, leikmaður Vals, hefur verið kölluð inn í landsliðshópinn í staðinn fyrir Glódísi.

Ísland mætir Noregi 4. apríl og Sviss 8. apríl á AVIS-vellinum í Laugardalnum. Íslendingar eru með eitt stig í riðli 2 í Þjóðadeildinni.

Nafnalisti

  • Elísa Viðarsdóttirlandsliðskona
  • Glódís Perla Viggósdóttirlandsliðskona
  • ValurÍslandsmeistari

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 109 eindir í 7 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 7 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.