Viðskipti

Í­huga hærri tolla á alla

Samúel Karl Ólason

2025-03-31 10:32

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Innan veggja Hvíta hússins á sér stað mikil umræða um það hvurslags tolla setja á innflutning til Bandaríkjanna á miðvikudaginn. Mikið hefur verið deilt um það hvort beita eigi önnur ríki mismunandi tollum, eins og Trump hefur á köflum talað um, eða setja á almenna tolla, eins og Trump talaði um kosningabaráttunni.

Hvernig tollarnir eiga vera á liggja fyrir á miðvikudaginn, 2. apríl.

Trump sagði í gærkvöldi tollum yrði beitt gegn svo gott sem öllum ríkjum sem eiga í viðskiptum við Bandaríkin og hefur Wall Street Journal eftir heimildarmönnum sínum úr Hvíta húsinu forsetinn hafi þrýst á ráðgjafa sína um gera áætlanir um hærri tolla en áður hefur verið talað um og á fleiri lönd.

Ekki liggur fyrir hvernig tollum verður beitt en samkvæmt heimildum WSJ er til umræðu beita næstum öll ríki tuttugu prósenta tolli. Er það í takt við umræðu Trumps fyrir forsetakosningarnar í fyrra.

Einnig er til skoðunar beita tollum gegn öllum ríkjum sem Bandaríkin eru með viðskiptahalla við, með því markmiði reyna jafna þann halla út.

Einn heimildarmaður WSJ segir Trump hafi kallað eftir stórri og einfaldri áætlun. Það muni líklega fela í sér umfangsmeiri aðgerðir en áður hafi verið talað um.

Litið er til almennra tolla til auka mögulega tekjur ríkisins og vega upp á móti skattalækkunum sem Repúblikanar á þingi ætla framkvæma.

Öll ljós rauð

Markaðir hafa ekki farið vel af stað í morgun og búast fjárfestar við töluverðri óreiðu í vikunni. Vísitölur í Japan og Taívan hafa til mynda fallið um rúm fjögur prósent, samkvæmt frétt New York Times.

Svipaða sögu er segja af mörkuðum í Evrópu og flest ljós loga líka rauð í Kauphöllinni, þegar þetta er skrifað.

Stærsta ástæða þess búist er við óreiðu í vikunni er væntanleg tollayfirlýsing Trumps á miðvikudaginn.

Frá því hann varð forseti hefur Trump ítrekað talað fyrir tollum, sem hann segir geti verið notaðir til afla miklum tekjum fyrir Bandaríkin. Hann hefur einnig talað fyrir því skipta sköttum út fyrir tolla.

Trump hefur sagt aldrei hefði átt leggja tolla til hliðar í staðinn fyrir tekjuskatt árið 1913.

Í einföldu máli sagt virðist Trump sjá tolla fyrir sér sem fjölnota tól. Hann vill nota þá til afla tekna, breyta neysluvenjum Bandaríkjamanna og til þess auka innlenda framleiðslu. Þá hefur hann einnig talað fyrir því nota tolla sem einhverskonar barefli og vill hann til mynda nota tolla til þvinga Kanadamenn til ganga inn í Bandaríkin.

Nafnalisti

  • New York Timesbandarískt dagblað
  • Trumpkjörinn forseti Bandaríkjanna
  • Trumpskosningabarátta
  • Wall Street Journalbandarískt dagblað
  • WSJtímarit

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 444 eindir í 21 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 90,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,68.