For­seti Ís­lands kann að strokka smjör og búa til skyr

Magnús Hlynur Hreiðarsson

2025-03-23 14:04

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Forseti Íslands er vön ýmsum sveitastörfum því hún var í sveit í Skagafirði, sem barn og unglingur þar sem hún lærði meðal annars strokka smjör, búa til skyr og hún um gefa hænunum alla matarafganga af bænum.

Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands flutti ávarp við setningu Búnaðarþings í vikunni þar sem hún fjallaði um stöðu landbúnaðarins eins og hún er í dag, auk þess ræða framtíðina og þær áskoranir, sem bíða bænda við fjölbreytt verkefni sín.

Halla var í sveit í fimm sumur í Skagafirði og þekkir því vel til landbúnaðar eins og kom fram í máli hennar.

Mitt fyrsta starf var í sveit í Skagafirðinum. Ég var sjö ára fyrsta sumarið, sem ég dvaldi þar og í nokkur ár vann ég þar frá sauðburði og oft fram yfir réttir. Í sveitinni lærði ég margt, sem ég enn í dag, margt sem gerði mig þeirri manneskju, sem ég er. Líklega ber þar helst nefna vinnusemi og velvild í garð dýra og náttúrunnar, sagði Halla og hélt áfram segja frá sveitastörfum sínum.

Og ég vona hljómi ekki eins og aldagömul kona þegar ég segi ykkur þar lærði ég ekki bara mjólka kýr, rýja kindur og raka í garða heldur líka strokka smjör, búa til skyr og gefa hænsnum allar matarafganga. Engu var sóað, allt var nýtt, unnið var frá morgni til kvölds. Sumarfrí var ekki sjálfgefið og sjaldan tekið.

Halla var alltaf mjög ánægð í sveitinni og það gaf henni mikið af vinna við fjölbreytt störf landbúnaðarins.

En þessi lífs og starfsreynsla gaf mér ástríður fyrir landinu okkar og öllu því, sem það gefur af sér og einnig fyrir þeim, sem það rækta af vinnusemi og alúð, sagði frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands við setningu Búnaðarþings.

Nafnalisti

  • Forseti ÍslandsGuðni Th. Jóhannesson
  • Halla Tómasdóttirfyrrverandi forsetaframbjóðandi
  • HalliHalldór Smári Sigurðsson

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 329 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 75,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,61.