Menning og listir

Í langvarandi sambandi við list og hönnun

Ritstjórn mbl.is

2025-03-31 21:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ítalski kaffiframleiðandinn Lavazza snýr aftur sem samstarfsaðili HönnunarMars sem fer fram dagana 2.6. apríl næstkomandi.

Í ár hefur Lavazza einnig leitt hesta sína saman við listakonuna Maríu Guðjohnsen, en hún sérhæfir sig í þrívíddarhönnun og new media list. Hún hefur áður unnið með vörumerkjum á borð við Dolce & Gabbana, Gucci, Adidas og Jägermeister. Þetta er í fyrsta sinn sem viðfangsefni í verki hennar er kaffi.

Helsti kaffiframleiðandi í heimi

Lavazza var stofnað í Torínó á Ítalíu árið 1895 og er í dag einn helsti kaffiframleiðandi í heimi. Lavazza er þekkt fyrir hágæða kaffiblöndur ásamt samfélagslegri ábyrgð og sjálfbærni innan kaffiiðnaðarins, en Lavazza er mjög virkur þátttakandi í sínu nærumhverfi, hvort sem varðar stuðning við listir, íþróttir eða kaffibændur, segir Ragnheiður Skúladóttir vörumerkjastjóri hjá Danól.

Lavazza á langvarandi samband við list og hönnun, allt frá listrænni ljósmyndun til vöruhönnunar. En Lavazza telur kjarna vörumerkisins verða tjá með list og fegurð, enda kaffigerð listform út af fyrir sig.

Í samstarfi við Guggenheim-safnið í New York

Í gegnum tíðina hefur Lavazza unnið með ýmsum listamönnum svo sem Helmut Newton, David LaChapelle, Annie Leibovitz, Elliott Erwitt og Erwin Olaf, ásamt því eiga í samstarfi við Guggenheim-safnið í New York, Triennale í Mílanó og VELA í Feneyjum, svo fátt nefnt.

Lavazza telur tengingu við list og upphefð ungra listamanna mikilvæga, hvort sem á við sem tjáningarform fyrir sýn vörumerkisins eða mikilvægi listar fyrir samfélagið sjálft. Lavazza heldur því áratugalöngu ástarsambandi við listina áfram, á Íslandi, segir Ragnheiður enn fremur.

Uppruni í verkinu Rætur og rennsli

María hefur einstaka sýn og túlkar þema hátíðarinnar uppruna í verkinu Rætur og rennsli. Verkið er margþætt, en það er útfært sem gagnvirkt (AR) vegglistaverk á gafli Laugavegs 3 og videóverk. María kafar abstrakt inn í umbreytingu kaffis; frá uppruna þess sem hráefni af jörðu, til fljótandi orku. Í hringiðu hversdagsins gleymist staldra við og huga því hvað liggur baki þessa staðfasta drykks sem leikur svo stórt hlutverk aukaleikara í okkar daglega lífi. María losar sig við hefðbundna framsetningu og tjáir ferlið í gegnum áferð, hreyfingu og flæðandi form, segir Ragnheiður lokum.

Samstarfið er frumsýnt á DesignTalks í Hörpu miðvikudaginn 2. apríl, en þar verður Lavazza með pop-up kaffibar og sérhannaðan og framandi HönnunarMars kaffidrykk, auk innsetningar með verki Maríu.

Verkið er gagnvirkt og verður hægt sjá það vakna til lífsins með auknum veruleika (e. Augmented reality) sem virkjaður er með snjallsíma.

Innsetningin flytur svo í Smáralindina það sem eftir varir af hátíðinni, en kaffibarþjónar Lavazza munu bjóða gestum og gangandi upp á ilmandi kaffi auk HönnunarMarsdrykksins í Lavazzabúðinni í Hagkaup í Smáralind helgina 5. og 6. apríl næstkomandi frá klukkan 12:00-15:30.

Nafnalisti

  • Adidasþýskur íþróttavöruframleiðandi
  • Annie Leibovitzljósmyndari
  • Danóldótturfyrirtæki
  • David LaChapelleljósmyndari
  • DesignTalksalþjóðleg ráðstefna
  • Dolceminn uppáhaldskafli á hvaða matseðli
  • Elliott Erwitt
  • Erwin Olaf
  • Gucciítalskt tískuhús
  • Harpatónlistar og ráðstefnuhús
  • Helmut Newtonljósmyndari
  • HönnunarMarshönnunarhátíð
  • Jägermeisterdrykkur
  • Lavazzakaffiframleiðandi
  • María Guðjohnsenþrívíddarhönnuður
  • Ragnheiður Skúladóttirvörumerkjastjóri
  • Torínóítölsk borg

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 483 eindir í 22 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 18 málsgreinar eða 81,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,70.