„Þetta leggst frekar illa í mig“

Ritstjórn mbl.is

2025-03-25 20:21

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Við munum mæta þessu með skynsemisrökum, segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, um breytingar á lögum um veiðigjöld.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynntu breytingarnar í dag.

Hefur áhyggjur af skilaboðum ríkisstjórnarinnar

Ég hef ekki náð kynna mér þetta nógu ítarlega en þetta leggst frekar illa í mig og ég tel þetta muni draga verulega úr samkeppnishæfni greinarinnar, segir Guðrún í samtali við mbl.is.

Segist hún hafa áhyggjur af skilaboðum sem ríkisstjórnin virðist vera senda, þá sérstaklega á landsbyggðina.

Þar sem talað er um skattleggja ferðaþjónustuna, það er talað um skattleggja núna sjávarútveginn og svo á setja kílómetragjald. Þetta eru allt mjög íþyngjandi skattar á landsbyggðina sem mun draga úr verðmætasköpun og þróttinum í atvinnulífinu.

Við þurfum hlúa þeim fyrirtækjum sem hér starfa

Hanna Katrín sagði í dag með breytingunni ættu skapast auknar tekjur sem myndu nýtast í innviðauppbyggingu á landsbyggðinni.

, en þú mátt heldur ekki kæfa fyrirtækin þannig þau fari með starfsemi úr landi eða fari með einhver verkefni frá landinu. Þá verður verðmætasköpun ekki til hér á landi, segir Guðrún og nefnir hún sjálf hafi talað mikið fyrir því það þurfi stækka kökuna.

Það eru líka bara viðsjárverðir tímar í heiminum og við þurfum hlúa þeim fyrirtækjum sem hér starfa. Ég held ríkisstjórnin ætti horfa til þess hvernig hún geti einmitt styrkt atvinnulífið í landinu til þess skapa hér tekjur og tryggja störfin séu hér á landi.

Nafnalisti

  • Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Guðrún Hafsteinsdóttirfyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins
  • Hanna KatrínFriðriksson

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 277 eindir í 13 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 92,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,61.