Stjórnmál

Utanríkisráðherra boðar stefnumótun og aðgerðir í varnarmálum

Innanríkisráðuneyti

2025-03-11 13:48

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Utanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í dag tillögu mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024 kemur fram mótuð verði öryggis- og varnarmálastefna. Stefnunni er ætlað lýsa helstu öryggisáskorunum til lengri og skemmri tíma með áherslu á ytri ógnir og draga fram markmið Íslands í alþjóðlegu öryggis- og varnarsamstarfi, fjalla um nauðsynlegan varnarviðbúnað, og skipulag og getu sem þurfi vera til staðar á Íslandi, auk þess benda á hugsanlegar umbætur á laga- og stofnanaumgjörð varnarmála.

Þörfin á styrkingu í öryggis- og varnarmálum er knýjandi og því hef ég flýtt þessari stefnumótun, sem unnin verður í samstarfi við alla flokka á Alþingi, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Við þurfum sjá til þess hér til staðar nauðsynleg þekking, geta og innviðir til tryggja öryggi Íslands í samstarfi við bandalagsríki okkar. Í dag erum við ekki aðeins ýta úr vör stefnumótun heldur einnig aðgerðum.

Byggt verður á stefnum og skuldbindingum sem Ísland hefur tekist á hendur og átt þátt í þróa, m.a. innan Atlantshafsbandalagsins og á grundvelli varnarsamningsins við Bandaríkin og svæðisbundins varnarsamstarfs. Settur verður á fót samráðshópur þingmanna allra flokka sem sæti eiga á Alþingi til ræða inntak og áherslur stefnunnar. Jafnframt verður óskað álits frá innlendum og erlendum sérfræðingum á sviði öryggis- og varnarmála. Þá verður náið samráð haft við utanríkismálanefnd, ráðherranefnd um öryggis- og varnarmál og þjóðaröryggisráð. Utanríkisráðuneytið heldur utan um vinnuna í samstarfi við dómsmálaráðuneytið og önnur ráðuneyti og stofnanir. Stefnt er því leggja fram drög stefnu fyrir lok vorþings.

Á sama tíma og þessi vinna hefst verður ráðist í nauðsynlegar aðgerðir til styrkja varnarviðbragð Íslands og stöðu landsins sem samstarfsaðila bandalagsríkja í varnarmálum, innan núverandi fjárheimilda til varnarmála. Þar er m.a. horft til þess auka samlegð í starfi stofnana á þessu sviði með auknu samstarfi, efldri vöktunar- og viðbragðsgetu og kaupum á sérhæfðum búnaði.

Meðal aðgerða sem ráðist verður í er uppsetning á samþættingarmiðstöð öryggis- og varnarmála á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í samvinnu við ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæsluna og CERT-IS. Þá verður ómannaður eftirlitskafbátur tekinn í notkun í samvinnu við Landhelgisgæsluna til efla eftirlit með sæstrengjum og höfnum. Eftirlit með netárásum verður sömuleiðis eflt, örugg fjarskipti bætt og ráðist í kaup á búnaði til nema og stöðva ólöglega dróna.

Nafnalisti

  • CERT-ISnetöryggissveit
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 390 eindir í 17 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 15 málsgreinar eða 88,2%.
  • Margræðnistuðull var 1,61.