OPEC+ eykur framleiðslu og olíuverð lækkar um 7%
Ritstjórn Viðskiptablaðsins
2025-04-03 14:56
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Heimsmarkaðsverð á Brent hráolíu hefur lækkað um 7% í dag eftir að Opec + tilkynnti óvænt um áform um að auka framleiðslu á sama tíma og boðaðir tollar Bandaríkjanna hafa ýtt undir áhyggjur um minni hagvöxt á heimsvísu. Financial Times greinir frá.
Verð á tunnu af Brent hráolíu hefur lækkað um tæp 7% og stendur í 69,73 dölum þegar fréttin er skrifuð.
Átta aðildarríki Opec + , þar á meðal Sádi-Arabía og Rússland, tilkynntu að þau hyggjast þrefalda áformaða framleiðsluaukningu í maí og vinda þannig hraðar ofan af fyrri skerðingum. Opec + ríkin áforma þannig að auka framleiðslu í maí um 411 þúsund tunnur á dag, samanborið við fyrra viðmið um 122 þúsund tunnur á dag.
Ríkin sögðu að ákvörðunin hefði verið tekin í ljósi vísbendinga um jákvæðar horfur á mörkuðum.
Heimsmarkaðsverð á öðrum stórum hrávöruflokkum, þar á meðal kopar, áli og úran, hafa einnig lækkað í dag. Í umfjöllun FT segir að vísitala yfir koparverð í LMSE hafi lækkað um 3%. Þá hafi álverð fallið um 2% og ekki verið lægra í sex mánuði.
Nafnalisti
- Brentmikill talsmaður frekari þéttingar
- Financial Timesbreskt dagblað
- FTFinancial Transactions
- Sádi-Arabíakonungsríki
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 182 eindir í 9 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,91.