Ekkert spurst til Sól­rúnar á Spáni í nokkra daga

Jón Þór Stefánsson

2025-04-03 14:56

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ekkert hefur spurst til Sólrúnar Petru Halldórsdóttur, 24 ára gamallar íslenskrar konu, í tæplega þrjá sólarhringa. Síðast er vitað um ferðir hennar á Torrevieja-svæðinu á Spáni.

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins staðfestir við Vísi umrætt mál sjá á þeirra borði. Borgaraþjónustan veitir þó ekki frekari upplýsingar um einstök mál.

Halldór Ágústsson, faðir Sólrúnar, greinir frá því í samtali við Vísi Sólrún glími við fjölþættan vanda.

Lögregluyfirvöld á Spáni eru búin allar upplýsingar um hana og myndir af henni, en þeim hefur ekki tekist finna hana. Þeir hafa leitað á öllum lögreglustöðum og sjúkrahúsum alls staðar í grendinni. Hún fannst hvergi. Enginn virðist vita neitt hvað varð um hana, segir Halldór.

Hann tjáir sig um málið við fréttastofu í von um Íslendingar á Spáni verði varir um málið og hafi augun opin fyrir Sólrúnu.

Hún leigir með öðrum Íslendingi í La Mata, sem er rétt hjá Torrevieja. Hún varð viðskila við heimili sitt. Það fann hana einhver um kvöldið 31. mars úti í garði hjá sér í engum skóm og sokkum, bara í peysu og buxum, og var greinilega ekki búin borða mikið. Það var farið með hana á spítalann á Torrevieja. Um klukkan þrjú um nóttina var henni bara vísað út af spítalanum með engin skilríki, engan pening og engan síma, segir Halldór.

Hún hefur bara ráfað út í buskann og síðan hefur ekkert spurst til hennar.

Nafnalisti

  • Halldór Ágústsson
  • Sólrún Petra Halldórsdóttir

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 258 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,61.