Sér­stök staða orku­sveitarfélaga!

Guðmundur Haukur Jakobsson

2025-04-03 14:37

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hvers vegna skyldu orkusveitarfélög vera jafn snúin og þver og raun ber vitni. Mýtan segir þessi sveitarfélög séu sterk efnuð en raunin er önnur. Þessi sveitarfélög eru flest út á landi og hafa sömu tekjustofna og önnur sveitarfélög, nema þá kannski sveitarfélög sem eru í þeirri stöðu geta selt lóðir og innheimt innviðagjöld.

En það er í raun stór skekkja sem þessi sveitarfélög eru berjast við, það er undanþága orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu og jöfnunarsjóður. Þessar skekkjur hafa misjöfn áhrif á þessi sveitarfélög og þar fléttast regluverk jöfnunarsjóðsins inn á misjafnan hátt. Það er t.d. sérstök staða vera í þurfa nýta alla álagningarstuðla í botn til verða ekki fyrir skerðingu frá jöfnunarsjóði og á sama tíma þurfa lúta því hafa ekki heimild til leggja á fasteignagjöld vegna undanþágu orkumannvirkja frá lögbundnum tekjustofni sveitarfélaga. Ég hugsa það væru einhverjir fleiri sem myndu láta heyra í sér ef sama gilti fyrir álverin eða t.d. Hörpuna eða þá bara allar fasteignir sem eru í eigu ríkisins, en ríkið greiðir meira en 10 milljarðar á ári í fasteignagjöld til sveitarfélaga, sem lang stærstu leiti rennur til sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Það hallar því miður alltaf á landsbyggðina.

Ef það væri eins farið á Íslandi og í Noregi er snýr skattaumhverfi orkumannvirkja þá myndu tekjur ríkisins frá orkufyrirtækjunum aukast um rúm 30% og tekjur sveitarfélaga aukast um, haldið ykkur fast, aukast um ríflega 800%, það er ekkert lítið sem munar. Á tyllidögum þykir fínt vitna í og bera saman við Noreg. Þarna liggur t.d. ein skýring á því af hverju sveitarfélag eins og Húnabyggð þarf vera með alla álagningarstuðla í botni. Hvað myndi þetta þýða fyrir öll sveitarfélögin sem hafa orkumannvirki eða háspennulínur í sínu nærumhverfi? þetta gætu verið allt 1012 milljarðar á ári, en þá er jafnan viðkvæðið þessi sveitarfélög hafi ekkert með svona mikla peninga gera, er það málið. Fæstir virðast hafa hugsað þetta til enda, þetta er nefnilega einfaldasta leiðin til auka fjármuni inn á sveitarstjórnar stigið, þessi sveitarfélög hefðu meiri möguleika á því verða fjárhagslega sjálfstæð, bara við það eitt innheimta fasteignagjöldin sem þeim ber, núverandi staða skapast af undanþágu.

En rúllum aðeins yfir fjárhagslegu hliðina og það sem er í bígerð. Samkvæmt innviðaskýrslu Samtaka iðnaðarins þá er endurstofnvirði orkumannvirkja og flutningskerfi raforku 1864 milljarðar króna. Ef þessar fasteignir litu sömu lögmálum og allar aðrar fasteignir þá væri álagningarprósenta fasteignaskattsins 1,65% og greiðslur til sveitarfélaganna væru rúmir 30 milljarðar á ári í stað u.þ.b. 1,7 milljarða sem greiðslurnar eru í dag. Ef greitt væri eins og í Noregi, þar sem álagningarprósenta orkumannvirkja er 0,7% þá væru þetta um 13 milljarðar sem orkufyrirtækin greiddu til sveitarfélaganna í gegnum þeirra lögbundna tekjustofn, fasteignagjöld.

Ef ekki á fara þessa leið og klára málið með orkusveitarfélögum og heimila þeim innheimta fasteignagjöld eins og jafnan er gert þá er alveg hægt gera tillögur um allskonar eins og t.d. þar sem eru stórnotendur raforku þá borgi þau sveitarfélög hluta af innheimtum fasteignagjöldum til sveitarfélaganna sem skaffa land undir orkuframleiðsluna, væri það ekki bara sanngjarnt? Eða jafnvel líka hluta af útsvarinu sem verða til við nýta alla þessa orku. Maður spyr sig!

Höfundur er oddviti í orkusveitarfélaginu Húnabyggð.

Nafnalisti

  • Húnabyggðsveitarfélag

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 584 eindir í 22 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 86,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,78.