Slys og lögreglumál

Sagði ná­kvæm­lega hve­nær á­rásirnar myndu hefjast

Samúel Karl Ólason

2025-03-26 18:22

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Talsmenn Hvíta hússins hafa síðustu daga varið miklu púðri í gagnrýna blaðamann sem var fyrir mistök bætt inn í spjallhóp margra af æðstu ráðamönnum Bandaríkjanna. Þar ræddu þeir yfirvofandi árásir gegn Hútum í Jemen og deildu upplýsingum um árásirnar sín á milli en búið er birta öll samskiptin úr hópnum.

Í hópnum voru varaforseti Bandaríkjanna, utanríkisráðherra, varnarmálaráðherra, þjóðaröryggisráðgjafi Hvíta hússins, yfirmaður CIA, yfirmaður allra leyniþjónusta Bandaríkjanna og sérstakur erindreki Donalds Trump gagnvart Mið-Austurlöndum, Úkraínu og Rússlands, sem var þá staddur í Rússlandi, svo einhverjir séu nefndir.

Athygli hefur vakið Christopher Grady, aðmíráll og starfandi formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, var ekki í hópnum.

Þau töluðu um það hvort gera ætti árásir á Húta, af hverju, hvernig ætti láta Evrópu borga fyrir árásirnar og hvernig ætti gera þær. Því hefur einnig verið haldið fram Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, hafi deilt leynilegum upplýsingum fyrir árásirnar um hvenær þær ættu hefjast, hvernig þær yrðu gerðar og skotmörk.

Trump-liðar hafa haldið því sérstaklega fram Hegseth hafi ekki deilt stríðsáætlunum og því sem deilt hafi verið í hópnum hafi ekki verið leynilegar upplýsingar. Talskona Hvíta hússins hefur bent á í grein Atlantic er talað um árásaráætlun en ekki stríðsáætlun og það hefur Hegseth gert einnig.

Í viðtali við Fox sagði hann alveg ljóst engum stríðsáætlunum og engum leynilegum upplýsingum hefði verið deilt.

Pete Hegseth: Nobody is texting war plans. Well I noticed this morning, out came something that doesn't look like war plans. And as a matter of fact, they even changed the title to attack plans,because they know it's not war plans. pic.twitter.com/sJY 3 ZkIGsW]]-Aaron Rupar (@atrupar) March 26, 2025

Þeir hafa einnig ítrekað gagnrýnt blaðamanninn harðlega, þó hann hafi lítið annað gert en vera skráður á samskiptaforritið Signal, en þjóðaröryggisráðgjafi Trumps bætti honum í áðurnefndan hóp og virðist hann ekki hafa gert sér grein fyrir hverjum hann var bæta inn í hópinn.

Meðal annars hefur blaðamaðurinn verið kallaður úrhrak, ræfill og fúskari.

Sjá einnig: Segist bera fulla ábyrgð en samt ekki

Atlantic hefur birt skjáskot af öllum samskiptum í hópnum, á þeim grunni Hvíta húsið hefur sagt engar leynilegar upplýsingar hafi verið send í hópnum, og kemur þar fram Hegseth sagði öðrum í hópnum nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast töluvert áður en þær hófust.

Bæði núverandi og fyrrverandi starfsmenn i varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og aðrir sérfræðingar hafa sagt fjölmiðlum vestanhafs upplýsingarnar sem Hegseth deildi ættu klárlega vera leynilegar.

AP fréttaveitan segir leiðtogar varnarmálanefndar öldungadeildar þingsins hafi sent kröfu á Hvíta húsið um málið verði rannsakað og meðlimur ríkisstjórnarinnar mæti á fund nefndarinnar og segi meðlimum hennar ítarlega frá málinu.

Sagði nákvæmlega hvernær árásirnar myndu hefjast

Það helsta sem kemur fram í þessum nýju skjáskotum snýr Hegseth. morgni laugardagsins 15. mars, dagsins sem Bandaríkjamenn hófu umfangsmiklar árásir gegn Hútum sem standa enn yfir, sendi varnarmálaráðherrann löng skilaboð á hópinn.

Þar kom fram nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast, hvenær frekari árásir yrðu gerðar og hvernig. Þetta var hálftíma áður en árásirnar áttu hefjast og fylgdu upplýsingar um fimm árásarbylgjur yfir rúmlega þrjá klukkutíma.

Þá kom fram fyrsta árásin yrði gerð á tiltekinn meðlim Húta og notast yrði við F17 Hornet herþotur, MQ-9 dróna og Tomahawk stýriflaugar.

Pete Hegseth

TEAM UPDATE:

TIME NOW (1144 et): Weather is FAVORABLE. Just CONFIRMED w/CENTCOM we are a GO for mission launch.

1215 et: F-18s LAUNCH (1 st strike package)

1345: Trigger Based F-18 1 st Strike Window Starts (Target Terrorist is @ his Known Location so SHOULD BE ON TIME)-also, Strike Drones Launch (MQ-9s)

1410: More F-18s LAUNCH (2 nd strike package)

1415: Strike Drones on Target (THIS IS WHEN THE FIRST BOMBS WILL DEFINITELY DROP, pending earlier Trigger Based targets)

1536: F-18 2 nd Strike Starts-also, first sea-based Tomahawks launched.

MORE TO FOLLOW (per timeline)

We are currently clean on OPSEC.

Godspeed to our Warriors.

Skilaboðin enduðu á því Hegseth sagði engar upplýsingar um þessar árásir hafa lekið, jafnvel þó umræðan hafi átt sér stað í samskiptaforriti sem hægt hakka en vitað er til þess Rússar hafa í það minnsta reynt það, samkvæmt heimildum AP. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna varaði við notkun Signal þann 14. mars, degi áður en árásirnar voru gerðar, vegna þess rússneskur tölvuþrjótar væru reyna brjóta sér leið inn í kerfi samskiptaforritsins.

Meðlimir hópsins notuðu þar að auki í mörgum tilfellum einkasíma til skoða og senda skilaboð í hópinn.

Svo var auðvitað blaðamaður í hópnum.

Það Hegseth hafi sjálfur nefnt í hópnum enginn vissi af þessum ætluðu árásum bendir til þess hann hafi sjálfur vitað mikilvægt væri svo gerðist ekki.

Sérfræðingar segja ljóst upplýsingar sem þessar ættu vera leynilegar en Trump og ráðamenn hans segja svo hafi ekki verið. Hvorki talsmenn Hvíta hússins embættismenn hafa viljað segja hver svipti leyndarhulunni af upplýsingunum og hvenær það var gert.

Hrósuðu hvort öðru fyrir góð störf

Svokölluð stríðsáætlun væri samkvæmt frétt New York Times mun ítarlegri en upplýsingarnar sem Hegseth deildi með hópnum. Hins vegar þykir ljóst ef upplýsingunum hefði lekið hefði það getað ógnað lífi flugmanna og gert skotmörkum kleift komast undan.

Skilaboðin gefa einnig til kynna Tulsi Gabbard, yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, hafi sagt ósatt í opnum nefndarfundi á þinginu í gær þar sem hún staðhæfði engum ítarlegum upplýsingum um árásirnar hefði verið deilt í hópnum.

Áður en blaðamaðurinn yfirgaf hópinn sagði þjóðaröryggisráðgjafi Trumps frá því helsta skotmark Bandaríkjamanna hefði verið í húsi kærustu sinnar og það hefði hrunið eftir árásir.

Eftir það hrósuðu þau hvort öðru fyrir góð störf og yfirmönnum CENTCOM, yfirstjórnar Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum.

Nafnalisti

  • Aaron Ruparblaðamaður VOX
  • Atlantictímarit
  • Christopher Grady
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • GO for
  • Hornetnýlegur jepplingur
  • Hvíta húsiðauglýsingastofa
  • Just CONFIRMED
  • Known Location
  • Marchaðstoðarmaður Rangnick
  • More F
  • MORE TO FOLLOW
  • MQbandarískur dróni
  • New York Timesbandarískt dagblað
  • Nobodylag
  • Pete Hegseth
  • SHOULD BE ON TIME
  • Signalsamskiptaforrit
  • Strike Drones Launch
  • Strike Drones on Target
  • Strike Starts
  • Strike Window Starts
  • Target Terrorist
  • TEAM UPDATE
  • THIS IS WHEN THE FIRST BOMBS WILL DEFINITELY DROP
  • TIME NOW
  • Tomahawkdanskt félag
  • Tulsi Gabbardfulltrúadeildarþingkona
  • Varnarmálaráðuneyti BandaríkjannaPentagon
  • Warriors
  • Weplata
  • Weathertitillag hennar
  • Well I

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 1039 eindir í 50 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 29 málsgreinar eða 58,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.