Grind­víkingum sem standa illa tryggður frekari stuðningur

Kolbeinn Tumi Daðason

2025-03-18 11:05

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ríkistjórnin ákvað á fundi sínum í dag halda áfram stuðningsaðgerðum við Grindvíkinga og atvinnurekendur í bænum. Einstaklingar og fjölskyldur í sérstaklega viðkvæmri stöðu munu áfram njóta nauðsynlegs stuðnings.

Við viljum gefa Grindvíkingum skýr svör um framhald stuðningsaðgerða til eyða óvissu því marki sem það er hægt, segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í tilkynningu. Hún lagði fram minnisblað um málefni Grindavíkur á ríkisstjórnarfundi ásamt fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, atvinnuvegaráðherra, mennta og barnamálaráðherra og umhverfis-, orku-loftslagsráðherra.

Ekki er hvikað frá þeirri stefnu Grindavík byggist upp nýju ef náttúran leyfir og það verður talið öruggt. Forsætisráðherra segir ákvarðanir ríkisstjórnarinnar á þessum tímapunkti snúa stuðningi við einstaklinga og fyrirtæki en á vormánuðum muni stjórnvöld efna til samráðs um framtíð sveitarfélagsins Grindavíkur og byggðar í bænum. Að undanförnu hefur verið unnið sviðsmyndagreiningu um framtíð Grindavíkur sem getur orðið grundvöllur slíku samtali.

Forsætisráðherra fundaði með bæjarstjóra Grindavíkur og forseta bæjarstjórnar í gær sem og þingmönnum Suðurkjördæmis þar sem ákvarðanir um næstu skref voru kynntar.

Tekju- og eignaminni fjölskyldur áfram stuðning

Lög um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ (nr. 94/2023) falla úr gildi 31. mars næstkomandi og verða ekki framlengd. Þess í stað verður stutt sérstaklega við tekju- og eignaminni heimili til áramóta á meðan leitað verður varanlegri lausna á húsnæðisvanda þeirra.

Framkvæmd úrræðisins verður í höndum þjónustuteymis Grindavíkurnefndar. Aðrir geti sótt um almennar húsnæðisbætur eða sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga.

Frestur til óska eftir uppkaupum á íbúðarhúsnæði í gegnum Þórkötlu verður framlengdur um þrjá mánuði frá 31. mars. því loknu verður fresturinn ekki framlengdur á ný.

Stuðningslán framlengd en ekki rekstrarstuðningur

Stuðningslán til fyrirtækja verða framlengd um eitt ár, til 1. júní 2026, til fyrirtæki geti byggt sig aftur upp í Grindavík eða flutt reksturinn ef þess er þörf. Rekstrarstuðningur við rekstraraðila verður hins vegar ekki framlengdur og fellur því úr gildi 31. mars. Í staðinn verður horft til þess nýta almennari úrræði um opinberan stuðning við atvinnulíf gegnum Sóknaráætlun Suðurnesja, segir í tilkynningunni.

Sóknaráætlanir landshluta hafi í gegnum tíðina fengið það hlutverk styðja við atvinnulíf á einstökum svæðum í tengslum við áföll á borð við snjóflóð eða skriðuföll og í tengslum við heimsfaraldur COVID19. Gerður verði viðaukasamningur við Sóknaráætlun Suðurnesja um stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík.

Ekki ráðist í uppkaup á atvinnuhúsnæði í Grindavík

Stjórnvöld ætla ekki ráðast í uppkaup á atvinnuhúsnæði í Grindavík. Sjónum stjórnvalda verði þess í stað beint því greina hvort persónulegar ábyrgðir vegna atvinnuhúsnæðis eða atvinnureksturs kalli á ráðstafanir til forða gjaldþrotum einstaklinga. Þörf fyrir slík úrræði verði könnuð með milligöngu umboðsmanns skuldara.

Forræði á Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur (Grindavíkurnefnd) hefur verið flutt frá innviðaráðuneyti til forsætisráðuneytis með forsetaúrskurði sem tók gildi 15. mars. Breyting verður gerð á skipan nefndarinnar og umfangi starfseminnar um næstu mánaðarmót. Stjórnskipan verður einfölduð og nefndarmönnum í fullu starfi fækkað.

Þjónustuteymi Grindavíkurnefndar hefur gegnt lykilhlutverki í stuðningi við Grindvíkinga síðustu mánuði. Teymið hefur meðal annars sinnt andlegum og félagslegum stuðningi, sem mikilvægt er hlúa áfram. Fjármagn verður tryggt fyrir áframhaldandi starfsemi teymisins, segir í tilkynningunni.

Niðurstöður íbúakönnunar

Dagana 20. febrúar til 2. mars sl. gerði Maskína könnun fyrir forsætisráðuneytið meðal þeirra sem búsettir voru í Grindavík við rýmingu 10. nóvember 2023. Markmiðið var afla upplýsinga m.a. um afdrif, líðan og hug til flytja aftur til Grindavíkur ef óhætt verður talið búa þar.

Í könnuninni birtist í fyrsta sinn mæling á hug Grindvíkinga til snúa aftur til bæjarins verði það talið öruggt. Rúmur þriðjungur hefur einhvern hug á snúa aftur, nærri því jafnmargir segjast ekki vita það og um fjórðungur hefur engin áform þar um.

Þá bendi niðurstöður könnunarinnar jafnframt til þess úrræði stjórnvalda til tryggja húsnæðisöryggi og afkomu fólks hafi skilað tilætluðum árangri. Hins vegar þurfi huga áfram andlegri líðan og félagslegum aðstæðum fólks, segir í tilkynningunni.

Framtíð byggðarinnar og íbúaþátttaka

Óvissa vegna jarðhræringa við Grindavík er mikil og ekki þykir ráðlegt hefja stórtækt endurreisnarstarf við núverandi aðstæður. Jarðhræringarnar ógna mikilvægum innviðum á Suðurnesjum öllum. Því verður sjónum stjórnvalda í vaxandi mæli beint styrkingu á áfallaþoli samfélagsins vegna þeirrar ógnar sem stafar af áframhaldandi jarðhræringum á Reykjanesskaga.

Íbúaþátttaka og samtal stjórnvalda við framtíðaríbúa verður hornsteinn endurreisnar byggðar í Grindavík. Á undanförnum vikum hefur ráðgjafarfyrirtækið Deloitte unnið greiningu á stöðu Grindavíkur og sviðsmyndum um hvernig Grindavík og samfélag Grindvíkinga gæti orðið 2035.

Stöðumatið og sviðsmyndirnar verða nýttar við áframhaldandi stefnumótun stjórnvalda sem og til frekara samtals við Grindvíkinga um framtíð byggðarinnar. Undirbúningur samtali við íbúa og sveitarfélagið Grindavíkurbæ um framtíðaruppbyggingu bæjarins hefst strax og er tíðinda vænta á vormánuðum um fyrirkomulag þeirrar vinnu.

Nafnalisti

  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • ÞórkatlaFasteignafélagsins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 818 eindir í 46 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 40 málsgreinar eða 87,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,54.